Alert icon
We're changing our privacy policy. This stuff matters.  Learn more  Dismiss

Innlit Útlit hjá Ásgeiri Kolbeins

Loading...

Sign in or sign up now!
Alert icon
Upgrade to the latest Flash Player for improved playback performance. Upgrade now or more info.
31,474
Loading...
Alert icon
Sign in or sign up now!
Alert icon

Uploaded by on Nov 2, 2006

Einhverjir fengu hland fyrir hjartað þegar þetta innslag var sýnt í Innliti/Útliti á Skjá Einum í vikunni. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á skjarinn.is.

--

Frétt tekin af vísi.is.


Vandlátir valda ólgu

„Við vissum að það yrðu viðbrögð við þessu en okkur datt ekki í hug að þau yrðu svona sterk," segir Þórunn Högnadóttir, einn umsjónarmanna lífstílsþáttarins Innlit/útlit sem sýndur er á Skjá einum.

Símalínur stöðvarinnar loguðu í gær þegar heilmargir hringdu lýstu heilmargir megnri óánægju með innslag í þættinum á þriðjudagskvöld. Þar var í máli og myndum sagt frá endurbótum fjölmiðlamannsins Ásgeirs Kolbeinssonar á íbúð við Bárugranda sem hann festi nýverið kaup á.

Arnar Gauti, einn umsjónarmanna þáttarins, ræddi við Ásgeir fyrir og eftir breytingar. Báðir hafa þeir vandlátan smekk og er skemmst frá að segja að fyrir breytingar féll íbúðin hvorugum í geð. Kölluðu eldhús- og baðinnréttingarnar fram sérstaklega sterkar tilfinningar hjá tvímenningunum, eins og ítrekuð notkun orðanna „ógeðslegt" og „viðbjóður" ber vitni um.

Þá kom fram að Ásgeiri þætti „mjög gott" að fara í bað en gat þó ekki hugsað sér að leggjast í baðkarið sem fylgdi íbúðinni sökum velgju. Að sögn Ásgeirs tók þó steininn úr þegar vinur hans, Jómbi að nafni, sá rimlagardínur sem fylgdu íbúðinni og seldi upp.

Þórunn segir að margir hafi hringt í sig og kvartað yfir sterkum lýsingarorðum Ásgeirs og Arnars á innréttingum, sem í augum leikmanns virtust ósköp venjulegar. „Smekkur manna er misjafn og það hefði kannski verið hægt að orða þetta öðruvísi. En svona tala strákarnir bara saman, þetta eru þeirra karakterar," segir hún en bætir við að eftir á að hyggja hafi þeir ef til vill gengið of langt. „Við pródúsentinn og klipparinn vorum á báðum áttum fyrir þáttinn og hugsuðum með okkur að kannski væri þetta fullgróft. Við klipptum þetta hins vegar til og ákváðum að senda þetta í loftið.

Okkur óraði hins vegar ekki fyrir afleiðingunum."
Þórunn býst við að að brugðist verði við athugasemdum sem þættinum hafa borist. „Hvernig sem það verður. Það hafa svo margir hringt að við verðum að gera eitthvað."
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/ 20061102/LIFID01/ 111020064/1120/LIFID99

Category:

People & Blogs

Tags:

License:

Standard YouTube License

  • likes, 7 dislikes

Link to this comment:

Share to:

Top Comments

  • Þetta gæti hafa verið sketch í Fóstbræðrum

  • "Ég er svona týpískur karlmaður með það ... æðislega gott að lenda í því að fá svona allt allstaðar" ... já, betra að fá allt allstaðar heldur en allt á EINUM STAÐ!

    Eins og ómálgað þroskaheft 6 ára barn þessi maður, þvílík sóunn á geli og brúnkukremi!

see all

All Comments (42)

Sign In or Sign Up now to post a comment!
  • content9.flixster.com/photo/11­/11/47/11114751_gal.jpg

  • mér finnst nú eftir breytingarnar ekkert spes - frekar dated sko.

  • Vinnur hinn ekki í dag í fatabúð og hinn sér um þa´tt sem sýnir brot úr bíómyndum. Geðveitk flottir menn hérna á ferð.

  • Mér finnst þetta kannski full grófur talsmáti en í hreinskilni sagt þá er íbúðin miklu skemmtilegri opnari og bjartari eftir breytinguna. Alltof þung fyrir breytinguna.

  • þessi maður myndi kalla húsið mitt alveg ferlegt ógeð ef þetta er ógeð

  • þrátt fyrir að hann sé rauðhærður , vill fá allt altstaðar fremur en á einum stað og er með jafn mikið brúnkukrem og litla frænka mín áður en hún fer á skóla ball þá væri ég ekkert á móti því að geta gert falskann vegg og klætt hann með pexigleri, og bara mublur og heimilistæki fyrir 2 miljónir eða meira og eitt stiki horbaðkar með nýja baðherberginu. Þetta er alvega eitthvað sem ég væri til í að geta gert fyrir ibúðina mína.

  • Hland fyrir hjartað? Ég veit bara ekki hvað ég fékk fyrir hjartað. Þetta er ... æ veit ekki, bara ótrúlega asnalegt, alveg ógeðslega 2006-2007 . . .

  • Hvað meina þeir... Þessi litli Sveppur á skilið að fá flatan lófa í andlitið...´ Og Ásgeir ætti að horfa á þennan þatt og pæla aðeins í sjálfum sér...

  • Hvað meina þeir... Þessi litli Sveppur á skilið að fá flatan lófa í andlitið...´ Og Ásgeir ætti að horfa á þennan þatt og pæla aðeins í sjálfum sér...

  • þeir báðust báðir afsökunar á þessum ummælum í fréttablaðinu eftir að þetta var sýnt...svo þeir sáu eftir þessu, það var enginn húmor í gangi. bara heimskuleg ummæli sem þeir þurftu svo að éta ofan í sig.

    að æla yfir einu venjulegu baðkari!!?? KOMMON!

    gæinn tók þessar yfirhalningar allar á yfirdrátt og þurfti að setja pleisið á sölu innan við ári eftir að hann flutti inn! ... ÞAÐ er sorglegt.

Loading...

Alert icon
0 / 00Unsaved Playlist Return to active list
    1. Your queue is empty. Add videos to your queue using this button:
      or sign in to load a different list.
    Loading...Loading...Saving...
    • Clear all videos from this list
    • Learn more