Lag númer fjórtán á plötu númer eitt, á disknum "Dans Gleðinnar"
Lag: Curly Putnam
Texti: Ómar Ragnarsson
Mín bernskuslóð óbreytt er
er ég út úr bílnum fer
og mér á móti koma pabbi minn og mamma,
en í dyrum stendur draumbjört kona
drottning minna glæstu vona.
Nú kem ég heim í kæra dalinn minn.
Já, þau taka öll mér aftur
opnum örmum og með tár á hvörmum
er kem ég heim í kæra dalinn minn.
Gamli bærinn er þarna ennþá,
orðinn fúinn, burstin skökk,
og þarna er smalakofinn sem ég byggði forðum.
Tvö við leiðumst niður græna grundu,
glöð og sæl á dýrri stundu,
er kem ég heim í kæra dalinn minn.
En þá vakna ég í værðarvoð
og við mér blasir sjúkrastofa.
Og það rennur upp fyrir mér,
já, þetta var bara draumur.
Ó guð einn veit hvort mér veitist kraftur,
að vakna upp af svefni aftur
og komast heim í kæra dalinn minn.
En þau taka öll mér aftur
opnum örmum og með tár á hvörmum
er til hvíldar ég kem heim í kæra dalinn minn.
Icelandic version of Green Green Grass Of Home! WOW!! Sounds fantastic!!!
SonOfLabrador 1 month ago
Frábær söngvari sem gat sungið öll lög, og söng þau öll af svo mikilli innlifun að maður fellir tár á vanga við hlustun á þeim.
karo9807 5 months ago