Önnur þáttaröð af Rétti hefst í mars á Stöð 2. Þetta er í fyrsta sinn í íslenskri sjónvarpssögu sem framleitt er framhald spennuþáttaraðar. Réttur er með öðrum orðum fyrsta íslenska spennuþáttaröðin til að öðlast framhaldslíf. Það er eins gott því lokaþáttur fyrstu þáttaraðar skildi áhorfendur eftir með öndina í hálsinum og fjölmargar spurningar um afdrif og örlög söguhetjanna Loga Traustasonar og samstarfsfólks hans á lögfræðistofunni Lögum og rétti.
Hver þáttur er sneisafullur af safaríkum málum sem lögfræðingarnir á Lögum og rétti taka að sér auk nokkurra stærri og einkar spennandi mála frá fyrsta þætti til hins síðasta.
Sem fyrr hefur Sigurjón Kjartansson yfirumsjón með gerð handrits en Margrét Örnólfsdóttir sá einnig um handritaskrifin en hún kom líka að gerð fyrstu þáttaraðarinnar auk Pressu sem Sigurjón var aðalhöfundur að ásamt Óskari Jónassyni.
Leikstjóri er Sævar Guðmundsson.
Frábærir þættir meira af þessu
Takk fyrir
bjossibollan 1 year ago