Árið 1967 léku talanspekingar stórt hlutverk í kosningavökunni eins og nú og var Guðmundur Arnlaugsson, stærðfræðingur, skákmeistari og fyrrum rektor í aðalhlutverki. Notast var við tölvu, sem var einskonar völva, að sögn Guðmundar, sem gat spáð fyrir um úrslitin. Og svo var það tröllskessan, sem hann kallaði svo, reiknivél í myndverinu sem reiknaði prósentuhlutfallið með miklum gassagangi.
Link to this comment:
All Comments (0)