Aukasýning föstudaginn 22. Maí
Á Litla Sviðinu kl 20:00
•Sýning sem er unnin upp úr orðræðu samtímans.
•Ótrúlegar sögur af íslensku bruðli.
Föstudaginn 8. mai verður aukasýning á leikritnu Þú ert hér. Sýningin er viðbragð við þeim breytingum sem íslenska þjóðin hefur gengið í gegnum á undanförnum mánuðum.
Þú ert hér
Þrír menn eru staddir í rústum. Þeir uppgötva að veröld þeirra er liðin undir lok og að þeir verða að læra að fóta sig að nýju. Úr rústunum í kringum sig raða þeir saman bútum af fyrra lífi og reyna að átta sig á því hvar þeir eru staddir, hvað hafi gerst og hvert skuli stefna.Þeir bregða upp myndum af því sem gerðist og viðbrögðum fjármálaheimsins, stjórnmálanna og íslenskrar alþýðu.Þar blandast saman bensínlaus lúxusjeppi, íslenska sauðkindin, geimfari með íslenskan fána, afmælisbarn og nóg af kóki.
Link to this comment:
All Comments (0)