Alert icon
We're changing our privacy policy. This stuff matters.  Learn more  Dismiss

Haukur Morthens / Fyrir átta árum. #3.

Loading...

Sign in or sign up now!
Alert icon
Upgrade to the latest Flash Player for improved playback performance. Upgrade now or more info.
3,706
Loading...
Alert icon
Sign in or sign up now!
Alert icon
Ratings have been disabled for this video.

Uploaded by on Jul 27, 2010

Haukur Morthens og hljómsveit í skemmtiþætti í sjónvarpinu. Þessi útgáfa var sýnd á skjánum árið1992 að ég best veit.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu.
Gústav Haukur Morthens (17. maí 1924 -- 13. október 1992) var íslenskur söngvari. Hann var einna frægasti söngvari á Íslandi á seinni hluta 20. aldar á Íslandi. Haukur Morthens var föðurbróðir Bubba Morthens.
Æviágrip
Haukur Morthens fæddist við Þórsgötu í Reykjavík, sonur Edvards Morthens, norsks manns og Rósu Guðbrandsdóttur ættaðri úr Landssveit. Haukur var 11 ára þegar hann kom fyrst fram með Drengjakór Reykjavíkur á söngskemmtan í Nýja bíó og söng einsöng. Svo liðu árin, Haukur þroskaðist sem og feimnin sem átti tök í honum. Í Alþýðuprentsmiðjunni þar sem hann var við nám, þá 18 ára, voru tvær stúlkur sem voru að undirbúa skemmtun fyrir Alþýðuflokkinn . Þær voru ólmar að fá þennan unga og glæsilega mann til að syngja á skemmtuninni enda höfðu fregnir borist um hæfileika hans. Haukur var tregur til enda feiminn en gat vart neitað svo fögrum meyjum og sló til.
Þar með var teningunum kastað og þegar Haukur Morthens hóf feril sinn 19 ára með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar eignaðist þjóðin sinn frægasta, ástsælasta og þekktasta dægurlagasöngvara fyrr og síðar.
Ferill
Hljómsveitarstjórar sóttust eftir að fá Hauk til að syngja með hljómsveitum sínum því hann var trygging fyrir vinsældum og fullu húsi. Árið 1962 stofnaði hann eigin hljómsveit og var ráðinn til að skemmta í hinum nýja og glæsilega skemmtistað Klúbbnum við Borgartún. Þaðan lá leiðin vítt um lönd og næstu þrjátíu ár söng Haukur sig inn í hug og hjörtu íslendinga sem dana og rússa ýmist sem gestasöngvari með erlendum hljómsveitum eða með eigin hljómsveit.
Hver perlan af annari ómaði í hjörtum sem slógu: Til eru fræ, Ó, borg mín borg, Frostrósir, Ég er kominn heim, Kaupakonan hans Gísla í Gröf, Simbi sjómaður, Lóa litla á Brú og fleiri smellir.
Ragnar Bjarnason sagði svo um Hauk:
Ef þú hlustar á hann syngja þá heyrirðu strax að hann er troðfullur af músík. Ég man líka að pabbi (Bjarni Bö) sagði um Hauk að hann væri „The New Generation", fulltrúi ungu kynslóðarinnar.

Category:

Music

Tags:

License:

Standard YouTube License

Link to this comment:

Share to:
see all

All Comments (0)

Sign In or Sign Up now to post a comment!
Loading...

Alert icon
0 / 00Unsaved Playlist Return to active list
    1. Your queue is empty. Add videos to your queue using this button:
      or sign in to load a different list.
    Loading...Loading...Saving...
    • Clear all videos from this list
    • Learn more