Sigling lítillar seglskútu endaði með ósköpum þann 21. júlí síðastliðinn þegar sá óvenjulgi atburður átti sér stað að sunnan sléttbakur stökk upp úr sjónum og lenti á þilfari bátsins og braut mastrið. Það var mikil lukka að áhöfnin á skútunni komst ómeidd gegnum þetta, en atburðurinn var utan ströndum Suður Afríku við eyjuna Hermanus, norðan við Höfðaborg.
Einhver var með tökuvél í nálægum bát og náði mjög hristri mynd af atburðinum. Mér datt í hug að reyna að gera myndina stöðuga í klippiforriti, og það tókst ágætlega þó að það tæki sinn tíma. Ég súmmaði líka inn þennan ótrúlega part og nú má skoða þetta mun betur...
vel gert!
baldvin11 1 year ago