Úr leiksýningunni "Rokk" frá leikfélaginu Hugleik sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu 10. júní nk. "Rokk" fjallar um tvær hljómsveitir sem deila með sér æfingahúsnæði. Eins og gefur að skilja koma upp ýmsir árekstrar og flækjur, og það setur óneitanlega strik í reikninginn að í annarri sveitinni eru eingöngu strákar, en hin er aðeins skipuð stelpum. Þar að auki koma við sögu eigandi húsnæðisins og alldularfullur fylgisveinn hennar. Tónlistin leikur eðli málsins samkvæmt býsna stórt hlutverk í sýningunni.
Link to this comment:
All Comments (0)