"Brunaliðið
Árið 1978 ákvað Hljómplötuútgáfan hf (síðar Skífan) að setja saman súperband. Magnús Kjartansson var ráðinn skipstjóri nýja bandsins sem fékk nafnið Brunaliðið, enda ætlunin að koma öllu í bál og brand. Meðal þeirra sem fegnir voru inn í súperbandið voru þeir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson úr Mannakorn, Diddú úr Spilverkinu og Ragnhildur Gísladóttir úr Lummunum. Fyrsta plata sveitarinnar, Úr öskunni í eldinn, kom út í maí 1978 og seldist strax eins og heitar lummur enda stútfull af smellum. Járnið var hamrað á meðan að það var heitt og um jólin sama ár kom út platan Með eld í hjarta sem síðar meir kom út undir heitinu 11 jólalög. Í ágúst 1979 kom út síðasta plata sveitarinnar sem heitir Útkall. Platan innihélt ekki einn einasta smell og útgerð Brunaliðsins var þar með snarlega hætt. "
Tónlist.is
It sounds like the melody to "Darling" by the popular group The Beach Boys....
mrvolvo10 2 years ago
It is "Darling" song, with icelandic lyrics :)
hitmix86 2 years ago