Hljómsveitin Æfing frá Flateyri frumflytur nýtt lag á Vagninum um Hvítasunnuna 2009 til heiðurs Danna Sveitó og Sollu. Hljómsveitameðlimir eru: Árni Ben, Ábbi, Jón Ingiberg, Siggi Björns, Dóri Páls, Önni Páls og Rúnar Garðars kemur líka við sögu. Strákarnir komu saman í tilefni fjörtíu ára afmæli sveitarinnar og fengu afhent sitt eigið svið, við Sólbakka, sem er í eigu Önfirðingafélagsins.
Strákarnir komu við í gamla samkomuhúsinu og tóku eitt lag á sviðinu áður en þeir voru sótti af limósínu sem Úlvar Önundar á og gerir út. (Það er allt til á Flateyri nema umferðarljós og stöðumælar). Guðmundur Sigurðsson og Lýður Árnason héldu á myndavélinni og Siggi Björns klippti dótið saman.
Link to this comment:
All Comments (0)