Faust er kominn á efri ár þegar hann uppgötvar að hamingjan verður ekki höndluð með lestri bóka eingöngu. Mefistó freistar hans og segist geta kynnt hann fyrir sannri hamingju í hinu ljúfa lífi skemmtunar og nautna. Faust tekur boðinu og handsalar veðmálið; finni hann hamingjuna undir handleiðslu Mefistós, þá eignast djöfullinn sál hans. Veðmálið verður þó fyrst tvísýnt þegar Faust kynnist hinni hreinu, saklausu Grétu sem er dregin inn í eilífa baráttu góðs og ills.
Magnað verk um öflin sem takast á í manninum og heiminum, um hreina ást, sanna hamingju og eilífa leit. Sagan af Faust er aldagömul enda hefur fjöldinn allur af útgáfum verið sviðsettur, kvikmyndaður og sunginn. Þekktust er líklega leikrit Goethe. Aðrar útgáfur eru t.d. leikrit eftir Christopher Marlow og skáldsögur Thomas Mann, Doktor Faustus og Mikhail Bulgakov, Meistarinn og Margaríta. Fjörtíu ár eru síðan sagan um Faust fór síðast á leiksvið á Íslandi og því tímabært að nýjar kynslóðir fái að kynnast þessari mögnuðu sögu.
Leikstjóri sýningarinnar er Gísli Örn Garðarsson og mætir hann hér aftur með sjálfan Nick Cave sér við hlið sem semur tónlist og söngtexta fyrir sýninguna ásamt Warren Ellis. Samstarf Borgarleikhússins, Gísla Arnar og félaga hans í Vesturporti hefur borið ríkulegan ávöxt enda hafa fyrri samstarfssýningar leikhúsanna ferðast víða um heim á undanförnum árum. Nægir þar að nefna Rómeó og Júlíu, Woyzeck og Kommúnuna.
Link to this comment:
All Comments (0)