Uploaded by MrKnutur on Dec 14, 2011
Lagið Næturljóð úr Fjörðum eftir Böðvar Guðmundsson í flutningi Svavars Knúts og Karíta Íslands.
Stundum er minna meira. Sérstaklega þegar kemur að jólunum. Stundum þarfnast maður bara einlægni, hlýju, einfaldleika og kósýheita frekar en íburðar, stjörnufans, 300 tonna af gervisnjó og ljósashow sem veldur flogum.
Ef þú vilt eitthvað einfalt, ljúft, fallegt og laust við tilgerð, haltu þá endilega áfram að lesa.
Hin dásamlega árlega Sælustund í Skammdeginu verður haldin í Fríkirkjunni í Reykjavík laugardagskvöldið 17. desember næstkomandi kl. 21. Þar koma fram sætir og krúttlegir listamenn og syngja falleg lög án allra aukaefna. Ekkert músíkalskt MSG, Aspartan eða Rotvarnarefni. Bara hreint, ómengað jólaskap og gleði.
Fram koma m.a.:
Karítur Íslands og Hilmar Örn, Svavar Knútur, Anna Jónsdóttir Sópran, Ylja, Myrra Rós, Low Roar
Jólaljóð verða lesin og sungið saman
Miðaverð fyrir öll herlegheitin aðeins 2.500 kr. og ókeypis fyrir börn í fylgd með foreldrum.
Á Sælustund í Skammdeginu verður blandað saman söng, hugvekjum og sögum og minnt á allt hið góða og fagra, sem er ekki gagnslaust, nú á dimmasta tíma ársins. Listafólkið mun syngja og leika bæði saman og hver sveit og listamaður fyrir sig. Áherslan verður lögð á hlýju og mannlega nærveru, þar sem áhorfendur munu ekki síður spila mikilvægt hlutverk.
Karítur Íslands eru skipaðar ungmeyjum úr Biskupstungum og víðar að og hafa þær flestar starfað saman í rúman áratug. Karíturnar hafa m.a. sungið með Megasi, Ragga Bjarna, Diddú, Mugison og fleiri landsþekktum listamönnum við gríðargóðar undirtektir. Þær hafa komið fram á Listahátíð í Reykjavík, Iceland Airwaves og Myrkum músíkdögum.
Svavar Knútur hefur undanfarin ár notið vaxandi vinsælda sem söngvaskáld og m.a. sungið með sinfóníuhljómsveit Íslands, Gunnari Þórðarsyni og mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Önnur sólóplata Svavars „Amma" er kom út í fyrra og hlaut frábærar viðtökur, en í ár gaf hann út dúettaplötu með Kristjönu Stefánsdóttur sem heitir Glæður.
Stjarna Myrru Rósar hefur risið hærra og hærra undanfarin misseri og hefur hún verið afskaplega bjartur ljómi í hópi íslenskra söngvaskálda. Hefur hún verið leiðandi í tónleikahaldi og nýtur mikillar aðdáunar fyrir falleg lög og frábæra söngrödd.
Anna Jónsdóttir Sópran hefur getið sér gott orð fyrir fallegan og tilfinningaríkan söng undanfarin ár og hefur vegferð hennar farið sívaxandi í íslensku sönglífi. Anna gaf nýlega út plötuna móðurást til heiðurs móður sinni, sem vill svo til að er amma Svavars Knúts.
Krakkarnir í Ylju hafa líka verið að gera það gott undanfarin ár, með mikilli spilagleði og skapandi vinnu. Það er frábært að sjá hvað þeim hefur gengið vel og vöktu þær mikla lukku á Melodicu hátíðinni í sumar. Yljusysturnar Bjartey og Guðný Gígja eru stórskemmtilegar og raddirnar þeirra hljóma yndislega saman!
Low Roar er listamannsnafn bandaríska tónlistarmannsins Ryans Karazija. Ryan flutti til Íslands fyrir ári og tók upp plötu heima í stofu hjá sér sem hefur fengið frábærar viðtökur hér á landi sem og erlendis.
Category:
Tags:
- Sælustund
- skammdeginu
- fríkirkjan
- svavar
- knútur
- karitur
- Hilmar
- Örn
- Kósý
- Ylja
- Myrra
- Rós
- Low
- Roar
- böðvar
- guðmundsson
- Live Music
- Show
License:
Standard YouTube License
-
10 likes, 0 dislikes
3:51
Kristjana Stefáns og Svavar Knútur aftur með dúettatónleikaby MrKnutur1,598 views
3:42
Næturljóð úr Fjörðum - Kristjana Arngrímsdóttirby Ospification604 views
7:57
Low Roar - Tonight, tonight, tonightby shishiw4k417,992 views
3:23
Svavar Knútur - Let's walk (Halla Norðfjörð Cover)by MrKnutur162 views
3:04
Næturljóð úr Fjörðum (Nocturne from the Fiords) by Böðvar Guðmundssonby MmeCoffeone2,472 views
2:58
Malmö Dans City Att Dansa är att Levaby OneIncredibleAB570 views
1:48
Hraun - Astarsaga ur fjollunumby MrKnutur9,672 views
3:11
Low Roar - Give Up (Official Video).movby Tonequake4,587 views
3:14
Haukur Morthens - Hagavagninnby ValurThor2,809 views
2:25
Jólastjörnur 2010 Jólin allstaðar,Jón Bjarki ,Erla og Unnurby Mr031265319 views
3:45
Svavar Knutur - Fra Lidnu Voriby MrKnutur18,570 views
2:28
Raggi Bjarna: Barnby thorir30a1,507 views
3:26
Vöggukvæði róttækrar móðurby sgo91264 views
3:47
Svavar Knútur feat. Myrra Rós - Brown Eyes (Shisha PM cover)by MrKnutur230 views
2:48
Bubbi Morthens - Við Erum KR (Allir Sem Einn)by emeliag1114,288 views
2:59
Ragnar Bjarnason / Dimmbláa Nótt - Næturljóð.by Humperdinkus4,800 views
1:18
Bium Bium kynning skoðið nánar http://www.biumbium.com/by Dorivax1,737 views
8:38
Tom a Jerryby majoranka01War2,921,754 views
2:25
CafeRosenberg01-02 2 mpeg 2by ICETBFfm61 views
10:53
Svavar Knútur - Leipzig (live)by ProsePurple1,860 views
- Loading more suggestions...
Link to this comment:
All Comments (0)