Þann 12. júní sl. var ársgamall grútarblautur örn handsamaður á Snæfellsnesi. Hann hefur dvalið í Húsdýragarðinum þar sem hann var þveginn, losaður við grútinn og gefið að éta en hann hreifst helst af niðurskornum nautahjörtum.
Í dag (24. júní) var erninum sleppt í Helgafellssveit. Hann var kraftmikill að sjá og tók flugið um leið og tækifæri gafst. Hann sveimaði í nokkurn tíma um svæðið áður en hann settist um stund 1-2 km frá sleppingarstað. Björgunin virðist hafa borið góðan árangur.
Arnarvarp gekk ágætlega í vor samanborið við undanfarin ár. Samtals fundust hreiður 44 arnarpara en heildarfjöldi para í stofninum er um 65. Á næstu dögum munu starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands fljúga yfir varpsvæði arna og kanna hverjir þeirra hafi komið upp ungum. Síðustu ár hafa oftast 23-25 pör komið 1-2 ungum á legg, þar af um þriðjungur 2 ungum.
Hér er stutt myndband af sleppingunni í dag. Því miður bar sleppinguna brátt að svo myndatökukonan hafði ekki tekið sér stöðu þegar örninn ruddist út úr búrinu.
Link to this comment:
All Comments (0)