RÉTTUR - hefst sunnudaginn 14. mars á Stöð 2!
Loksins er komið að annarri þáttaröðinni af Rétti en þetta er í fyrsta sinn í íslenskri sjónvarpssögu sem framleitt er framhald spennuþáttaraðar. Réttur er með öðrum orðum fyrsta íslenska spennuþáttaröðin til að öðlast framhaldslíf. Það er eins gott því lokaþáttur fyrstu þáttaraðar skildi áhorfendur eftir með öndina í hálsinum og fjölmargar spurningar um afdrif og örlög söguhetjanna Loga Traustasonar og samstarfsfólks hans á lögfræðistofunni Lögum og rétti.
Önnur þáttaröðin hefst þar sem þeirri fyrr lauk þegar Logi Traustason uppgötvaði sér til mikillar skelfingar að verið væri að reyna að ráða honum bana. Því skal þó ljóstrað upp að Logi lifir tilræðið af og heldur áfram störfum sínum fyrir lögfræðistofuna. Fyrr en varir er hann fenginn til að verja alræmdan glæpamann sem haldið hefur undirheimum borgarinnar í heljargreipum með handrukkunum og ofbeldisverkum. Þá vinnur Logi einnig í því að gera upp fortíð sína auk þess sem einkalíf hans og samstarfsmannanna er skrautlegt. Sem fyrr er spennan og hraðinn í fyrirrúmi í þessum fantagóða, alíslenska lögfræðikrimma. Hver þáttur er sneisafullur af safaríkum málum sem lögfræðingarnir á Lögum og rétti taka að sér auk nokkurra stærri og einkar spennandi mála frá fyrsta þætti til hins síðasta.
Sem fyrr hefur Sigurjón Kjartansson yfirumsjón með gerð handrits en Margrét Örnólfsdóttir sá einnig um handritaskrifin en hún kom líka að gerð fyrstu þáttaraðarinnar auk Pressu sem Sigurjón var aðalhöfundur að ásamt Óskari Jónassyni.
Leikstjóri er Sævar Guðmundsson en hann vakti verðskuldaða athygli fyrir gerð fyrstu þáttaraðarinnar.
Mjög góðir þættir, Magnús er góður og frábær leikstjórn
bjossibollan 1 year ago
hehe Energy Wipe :) flott hvernig þið létuð þetta passa við. Einfalt að gera en kemur massa vel út !
DentaDesign 2 years ago