Íslendingar stóðu á sínum tíma í hatrömmum deilum við Breta og Þjóðverja um réttnn tl að veiða fisk á Íslandsmiðum. Svo hatrammar voru deilurnar að Bretar sendu herþotur og samtals 22 freigátur á miðin til að verja togara sína, meðal annars með því að reyna að kafsigla íslensk varðskip. Stjórnmálasamband landanna slitnaði og Íslendingar hótuðu að segja sig úr Atlandshafsbandalaginu ef Bretar létu ekki undan kröfum Íslendinga. Staðfesta og samningsharka gerði að verkum að Íslendingar báru sigur af hólmi.
Link to this comment:
All Comments (0)