Mark Flanagan, formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, segir að skilyrði séu nú til að lækka vexti. Sendinefndin lauk ársfjórðungslegri athugun á framgangi efnahagssáætlunar Íslands og sjóðsins fyrir helgi. Flanagan segir að þróunin sé nokkurn veginn eins og við var búist. Hann telur enga hættu á að ríkissjóður Íslands geti ekki staðið við skuldbindingar sínar og vonast til að botninum verði náð í lok þessa árs og hagvöxtur verði að nýju á árinu 2010.
Link to this comment:
All Comments (0)