Svavar Knútur syngur Hvert örstutt spor af plötunni Ömmu í Kastljósi Ríkisútvarpsins.
Amma er til á tonlist.is og í öllum betri verzlunum.
www.svavarknutur.com
svavarknutur.bandcamp.com
Hvert örstutt spor
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
við sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við guð um þúsund ár.
Hvað jafnast á við andardráttinn þinn?
Hve öll sú gleði er fyrr naut hugur minn,
er orðin hljómlaus utangátta og tóm,
hjá undrinu að heyra þennan róm,
Hjá undri því, að líta lítinn fót,
í litlum skóm, og vita að heimsins grjót,
svo hart og sárt er honum fjarri enn,
og heimsins ráð sem brugga vondir menn,
Já vita eitthvað anda hér á jörð,
er ofar standi minni þakkargjörð,
í stundareilífð eina sumarnótt.
Ó alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt
credits
From amma (Songs for my Grandmother), released 17 November 2010
Music: Jón Nordal
Lyrics: Halldór Laxness
This is one of the most beautiful songs I've ever heard, and you sing like an angel. Yndislegt, yndislegt, yndislegt!
LotesseElfin 1 month ago
Þetta er eitt fallegasta lag og texti í heimi, og þú syngur þetta virkilega vel Svavar.
kariaudar 2 months ago
Yndislegt að heyra þegar íslenskar perlur eru sungnar með innlifun. Yndislegt að hlusta á þig Svavar.
adda84 2 months ago
Yndislega fallegt og ég er svo ánægð með að þú skulir vera mentor sonar míns á ukulele. Gæti ekki haft betri, klárari, skemmtilegri og meira lifandi kennara. Þú hefur svo sannarlega stimplað þig inn í familiuna ;)
TheSveina 2 months ago
Geggjað hjá þér eins og alltaf... Þarf að kíkja á þig og fjölskylduna og kaupa diskinn af þér
eldmey 3 months ago
Þetta er að syngja af mikilli innlifun, vá hvað þú ert með flotta rödd,
gringo24859 5 months ago
Þú syngur mjög fallega Svavar.
RaNdOmSoNgLiStEnEr 10 months ago