Fyrsti Kompásþáttur vetrarins verður sýndur næstkomandi þriðjudag klukkan 21:45 sem verður fastur sýningartími þáttarins í vetur. Í þessum fyrsta þætti beinum við sjónum okkar að málum manns sem er ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot gagnvart unglingsstúlkum. Hægt er að nálgast stiklu þáttarins hér til hliðar.
Í dag eru stórhættulegir barnaníðingar á Litla Hrauni, allir fá að hafa tölvur og flestir ná að smygla til sín netinu. Í skjóli fangelsis halda þeir áfram verknaði sínum, barnaníðingskap á netinu, semsagt börnin eru ekki sloppin, þó þeir séu læstir inni, staðreynd, því miður töluð af reynslu
jennygisla 2 years ago