Dalvíkurpoppararnir miklu, Eyþór Ingi og Matti ,,Papi" Matt fóru á kostum í bás sveitunga sinna, Promens/Sæplasts, á sjávarútvegssýningunni í Kópavogi 2011. Þeir hófu þar söng og hljóðfæraslátt um þrjúleytið laugardaginn 24. september þegar einungis lifði ein klukkustund af sýningunni og slógu botn í afar vel heppnað sýningarhald Promens. Hér eru tvö hljóðdæmi, hið fyrra er lagið sem Matti og fleiri Sjonnavinir fluttu af þrótti og list í Evrópusöngvakeppninni á vordögum 2011. Svo lýstu félagarnir eftir óskalögum og fengu m.a. beiðni um Zeppelinslagarann Immigrant Song! Ekki að spyrja að því, Eyþór Ingi renndi í lagið og skilaði því með glæsibrag. Robert Plant, hvað?
Link to this comment:
All Comments (0)