Á tónleikum Þjóðlagasveitar Tónlistarskólans á Akranesi, sem haldnir voru í Tónbergi 12. nóvember fyrir fullum sal af ánægðum tónleikagestum, var sveitinni og stjórnanda hennar, Ragnari Skúlasyni, veitt hin árlegu Menningarverðlaun Akraness fyrir framlag þeirra til menningar og lista á Akranesi á árinu.
Þjóðlagasveitin hefur verið starfrækt í núverandi mynd sl. átta ár og hefur Ragnar Skúlason verið stjórnandi sveitarinnar frá upphafi. Tilurð sveitarinnar má rekja til verkefnis sem Ragnar þróaði á sínum tíma, þar sem hann blandaði saman listgreinum og bjó til nýtt tónleikaform sem hefur vakið mikla athygli bæði hér heima sem og erlendis.
Link to this comment:
All Comments (0)