Pétur Jóhann Sigfússon leikur í nýrri gamanþáttaröð sem hefst á Stöð 2 í október. Þetta er 12. þátta gamansería sem segir frá hinum hálf-fertuga Sigga. Hann er fráskilinn og býr í íbúð nálægt Hlemmi, sem hann erfði eftir föður sinn. Á jarðhæðinni er gömul Videoleiga sem faðir hans rak og Siggi erfði hana einnig. Þannig hefur Siggi í sig og á, með því að halda lífi í gamalli videóleigu föður síns. Þetta gerir hann þó allt af veikum mætti og takmörkuðum áhuga, enda snúast dagdraumar hans um annað. Siggi hefur nefnilega alltaf átt sér þann draum æðstan að verða einkaspæjari.
haha þetta myndband er ekki einu sinni ein mínúta og það eru tvö alveg hrikaleg mistök í þessu!
1. fyrst er glugginn lokaður, svo allt í einu opinn, svo allt í einu lokaður og svo skrúfar hann niður!
2. svo er síminn allan tímann grár og svartur en þegar gæjinn á hjólinu kemur þá er síminn orðinn alveg svartur!
vona að serían verði ekki öll svona ;)
jkarlsson 1 year ago 3
nauhh síminn breyttist bara um lit!
Hakon1303 1 year ago