Blöð í Skotlandi skýrðu frá því að gerð hefði verið tilraun til þess að ræna Loftleiðaflugvél sem var á leið til Bretlandseyja frá Íslandi um jólin 1969, en að áhöfn vélarinnar hefði yfirbugað ræningjann, sem var bandaríkjamaður. Eitthvað virtist þetta þó orðum aukið, en hinn meinti flugræningi var sendur aftur með sömu vél til Keflavíkur í fylgd tveggja skoskra lögregluþjóna. Við skulum rifja upp þetta óvenjulega mál.
Link to this comment:
All Comments (0)