"Við viljum íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsefni"
Ráðamenn ríkisins og stjórnendur Ríkisútvarpsins virðast hafa ákveðið að leggja íslenska kvikmyndagerð í rúst.
35% niðurskurður framlaga til kvikmyndasjóða er skemmdarverk á greininni og svo kom rothögg frá Rúv; verulega verður dregið úr kaupum á kvikmyndaefni á innlendum markaði.
Með þessu sniðganga stjórnendur RÚV þær skyldur sem þeim eru lagðar á herðar sem og óskir eigenda sinna - og áhorfenda - sem vilja vandað íslenskt efni.
Niðurskurður er óhjákvæmilegur en sanngirni og jafnræði áttu að ráða för. Sexfalt hærri niðurskurður í kvikmyndagerð umfram flestar aðrar greinar segir aðra sögu. Kvikmyndagerð er þjóðhagslega arðbær iðnaður og skilar margfalt til baka fjárfestingu Ríkisins.
Ef það á að jarða íslenskan kvikmyndaiðnað er það stór menningarleg ákvörðun sem ekki er rétt að tekin sé í kyrrþey.
Við köllum eftir samstöðu allra þeirra sem bera hag íslenskrar menningar fyrir brjósti. Við þurfum að sporna gegn þessu eða sitja uppi með mikinn skaða.
Þriðji hluti þessarar litlu sögu frumsýndur mánudaginn 22.feb
Islenskarkvikmyndir 2 years ago