Breytum

Loading...

Sign in or sign up now!
Alert icon
Upgrade to the latest Flash Player for improved playback performance. Upgrade now or more info.
481 views
Loading...
Alert icon
Sign in or sign up now!
Alert icon

Uploaded by on Apr 23, 2009

Breytum er myndbandaræða sem ég gerði

Lagið sem hljómar er eftir A silver Mt Zion og heitir upprunalega Hang on to each other
Þarna eru meðal annars myndbrot sem ég tók í búsáhaldabyltingunni 20.-23. janúar 2009
ljósmyndir fengnar af alnetinu mikla

Þakka áhorf og áhuga
Skúli Arason apríl 2009


Ræðan:
Kæru allir
Síðan stóri hvellur skapaði þennan heim þá hefur margt breyst. Hér á jörðinni sköpuðust aðstæður til þess að apadýr fóru að ganga, hugsa, skapa og búa til siðmenningu. Við bjuggum til marga hluti og komum okkur loks á það stig að geta notað tíma í annað en það að hafa í okkur og á. Vegna vilja til að koma genum okkar áfram í þessum heimi í sem bestum aðstæðum upphófust miklar deilur við aðra mannapa sem hafa staðið, með mismiklum þunga, óslitið síðan þá.
Hin svokallaða siðmenning hefur þróast í þennan heim sem við nú þekkjum, við höfum trúarbrögð, störf, menntun, allskyns afþreyingu til að okkur leiðist ekki og ákveðnar væntingar til lífsins sem við lifum.
Nú stöndum við á stað þar sem við getum breytt stefnunni örlítið, stefnu sem hefur læst sig í alla þætti mannlífs frá vöggu til grafar. Hvernig við erum menntuð af fjölmiðlum og yfirvaldi, hvernig við kortleggjum lífið, hvernig við hegðum okkur gagnvart okkar nánustu og gagnvart öllum öðrum í heiminum. Hér á Íslandi er komin upp staða þar sem margir finna alvarlega hvernig þessi stefna fer illa með okkur. Að bankakerfi sem byggir aðallega á tölum í lánum hafi komið okkur hingað er furðuleg staðreynd, það er furðulegt að kerfið sem við styðjum sé svona.
Við höfum skapað heim þar sem rannsóknir í sálfræði hafa verið nýttar til að breyta hegðun okkar og stjórna okkur í þá átt sem ráðandi öfl vilja. það er vitað mál hvernig ímyndunarsmiðir hafa keyrt í gegn lífsmynstur sem inniheldur, ef horft er á það af hreinskilni, ansi drjúgt magn af klikkun. það er klikkun hvernig fólk borgar hús sín margfalt tilbaka í raunvirði, það er klikkun hvernig fjölmiðlar heimsins segja frá heiminum á ská og skjön eftir því hvaða miðill á í hlut, það er klikkun að stríð halda áfram þrátt fyrir augljósan fáranleika þeirra, það er klikkun að við höldum áfram að sóa heiminum á þann máta sem við gerum, það er klikkun að vera afkomandi okkar í framtíðinni.
Nú sem og alltaf getum við staldrað við horft jafnt inn á við og í kringum okkur og fundið hvað það er sem við viljum gera, hvernig land, líf og heim við viljum.
Hvort sem jörðin, forðakista alls mannkyns, lendir í lofsteinaregni, verður fyrir risaeldgosum, risaflóðbylgjum eða fær jafnvel að bragða á kjarnorkuvetri, þá viljum við vonandi upplifa eitthvað sem gæti kallast "gott líf" þangað til.
Síðan viljum við jafnvel að afkomendur okkar upplifi líka eitthvað af þessu góða lífi.
Inniheldur kerfið sem við lifum í þetta góða líf?
Getum við breytt kerfinu með því að láta í okkur heyra?
þurfa þeir sem ekki er um að kenna að fá að kenna á því?
Nei!
Við erum manneskjur fjandinn hafi það, líf okkar hefur gildi!
Breytum í sannleika
Breytum kerfinu
Breytum þessu landi!
Breytum þessum heimi!
Allir sem þekkja
allir sem vita að ástandið er ekki rétt
Breytum öllu sem heggur á rétt okkar sem menn
Burtu með pakkið sem græðir á heimsins eymd

  • likes, 1 dislikes

Link to this comment:

Share to:
see all

All Comments (1)

Sign In or Sign Up now to post a comment!
  • Gaman að sjá þetta. Tónlistin fellur vel að myndbandinu hjá þér Skúli.

Loading...

Alert icon
0 / 00Unsaved Playlist Return to active list
    1. Your queue is empty. Add videos to your queue using this button:
      or sign in to load a different list.
    Loading...Loading...Saving...
    • Clear all videos from this list
    • Learn more