Eftir útgáfu Thriller plötunnar og Michael heitari en nokkru sinni fyrr plataði fjölskylda hans hann til að taka þátt í tónleikaferð þeirra bræðra ('Victory"). Þessi hljómleikaferð átti að vera glamor og því var fenginn styrktaraðili sem var jú augljóslega Pepsi. Pepsi fékk í staðinn að gera 2 auglýsingar með þeim bræðrum þar sem þeir fengu leyfi til að nota Billie Jean og Michael söng nýjan texta við. Það sem er skemmtilegt að taka eftir í báðum auglýsingum er að Michael heimilaði aðeins 4 sekúndur af sér í nærmynd í báðum auglýsingunum en hann hafði ávallt puttana í öllu sem tengdist honum og ljósvakamiðlum.
Þetta er alveg sérstaklega áhugaverð auglýsing fyrir þær sakir.
Link to this comment:
All Comments (0)