Hundruð fjölskyndna standa nú frammi fyrir þeirri skelfilegu staðreynd að missa heimili sín á nauðungarsölu í vor verði ekkert að gert.
Fasteign fer á nauðungarsölu ef eigendur lenda í vanskilum og hafa ekki náð að semja um vanda sinn við lánastofnanir. Ferlið er í nokkrum skrefum. Á öllum stigum er skuldurum gefinn kostur á því að semja við lánardrottna sína og nýta sér þau margvíslegu úrræði sem í boði eru -eða að reyna að selja eign sína á almennum markaði. Ef það tekst ekki er fasteignin seld á nauðungarsölu. Við skoðum þessi mál í fréttaaukanum í kvöld og ræðum við móður sem stendur í þessum sporum.
Link to this comment:
All Comments (0)