Að vænta vonar er yfirskrift jóladagatals kirkjunnar. Í jóladagatalinu mætum við 24 vonarberum sem hvetja okkur áfram í dagsins önn. Vonarberarnir koma víða að, þau deila reynslu sinni með áhorfendum og segja í stuttu máli hvernig aðventan vekur þau til umhugsunar um vonina í lífinu.
Fyrsti glugginn í dagatalinu verður opnaður á miðnætti 1. desember og einn gluggi bætist við á dag fram að jólum. Fylgist með á www.kirkjan.is/joladagatal.
Jóladagatalið í ár er hið þriðja í röðinni. Umsjónarmenn þess eru Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, og Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur í Kjalarnessprófastsdæmi.
Link to this comment:
All Comments (0)