Þetta myndband var gert árið 1994 af Slim hf.
í góðu skapi
þruma eftir þjóðvegi
bifhjól og knapi
glotta út í annað
mót sól ég gapi
gíra niður gef í botn
þó teini tapi
í dag er ekkert bannað
Finnland að baki
Sovétríkin svífa nær
á Hondubraki
vegabréfið kannað
þó svefnleysi þjaki
hálfu verri er hausverkur
varla ég vaki
gægist út um annað
á hverjum degi
beyglan þurfti bensín
rúblum ég fleygi
í kerlingu sem brosti
á holóttum vegi
radarmælir "GAN" -inn
framundan eygi
fangelsi í frosti
mikill er tregi
halda skulum heim á leið
þó vodkan teygi
þrálátur er þorsti
til Íslands beygi
biðröð engin, beint áfram
kommúnisminn deyi
ekkert brauð með osti
Þvílík nostalgía! :D
Crymogea 5 days ago
loooksins!!!! :D
backbeyond 9 months ago
þetta lag, og svo bein leið og þjóðvegur 66 með kk eru bestu ísl. ferða-lögin
rvkice23 10 months ago
þetta lag er svo gott og flott!
logilogiigoligol 11 months ago