Ást við fyrstu sýn
Ég elska þig heitar en orð geta tjáð.
Tár mín svo frosin, orð mín svo tóm
þögul og brennandi heit er mín ást.
Ég man er ég leit fyrst í augu þín
vitandi allt.
Já ef steinar og jörð gætu talað, sagt frá
sporum í sandi frá liðinni öld,
kveðjum og heitum um eilífa tryggð.
Ég veit ég hef elskað þig áður
og elska þig enn
Það var ást við fyrstu sýn
það var ást við fystu sýn
Tíminn stóð í stað
og umhverfið hvarf
allt varð svo hljótt
veröld sem svaf - vaknaði
tindrandi björtum augum mig leit.
Við eigum svo undurvel saman við tvö,
skiljum hvort annað og heiminn svo vel
Sálir sem hittast og heilsast á ný
Ég veit ég hef elskað þig áður
og elska þig enn
Það var ást við fyrstu sýn
það var ást við fyrstu sýn
Tíminn stóð í stað...
Magnús Þór Sigmundsson
Google translate ????
Ingagessa 5 months ago
Ég elska þetta lag þetta minnir mig á ástkæra kærasta minn sem ég missti af því að vera lögreglumaður. Þetta lag gerir mig svo sorglegt. Ég líka sakna búa á Íslandi eins og heilbrigður. Það er eins og í gamla landinu mínu sem ég nota til að búa þegar ég var barn. Þetta er sorglegt lag eins og heilbrigður.
scottishdude28 1 year ago
Yndislega fallegur texti
skakhnetan 1 year ago