AMFJ
Itemhljóð & Veinan
Label: FALK
Inspired by Jón "priest of fire" Steingrímsson who stopped the lava flow with a powerful sermon.
Móða
17 8 3 tók
sá alvítri Guð, bæðí vöku og svefni,
að benda mér og öðrum,
að vér skyldum taka vara á oss
og búa oss
við yfirhangandi ókomnu straffi.
Eldroði sást á lofti og teikn,
á jörðu ormar og pestarflugur
skrímslí vötnum
og eldmaurildi,
item hljóð og veinan
í hennar iðrum,
vanskapan á nokkrum lömbum.
Drambsemin sté upp,
Sem ávallt er fallinu næst,
marga skikkanlega menn
dreymdi það,
sem eftir kom.
Biðjum til Guðs í réttilegri andakt
Að Hann í náð sinn vilji ei í hasti eyðileggja oss
Hver og einn sé án ótta biðjandi.
Hver og einn sé reiðubúinn að láta lífið,
Ef Honum þóknast.
Ekki oss, heldur nafni gefum vér dýrðina.
Sumir eru óguðlega talandi,
Æða og láta illa
En einnig þeir munu verða auðmjúkir og þolgóðir.
Einum Guði,
Sé æra!
Ákallið Guð
Og líðið þolinmóðlega
Það sem hann á leggur.
Guð gerir alla hluti vel og ei
Oréttvísilega.
Hann veit betur en menn hvað þeim er gagnlegt.
Gefið Guði dýrðina
Prísið hans háleita nafn
-Jón Steingrímsson (1728-1791)-
Link to this comment:
All Comments (0)