Atriðið Skattman úr Áramótaskaupinu 1989, þótt að ég hafi bara verið 3 ára þarna, þá mundi ég alltaf eftir þessu atriði og þegar ég fann þetta varð ég hreinlega að deila með öðrum. Hérna er sem sagt Ólafur Ragnar Grímsson í gervinu sínu árið 1989 SKATTMAN. Sem skattlegur allt ríka sem snauða, fæðingu og dauða, ástir og unað allt nema MUNAÐ...
Til hamingju Íslendingar, með seinustu Alþingiskosningar!
geiragustsson 1 year ago
ég man eftir þessu, en bara af því að það er alltaf einhver í fjölskyldunni hans pabba sem tekur upp skaupið. ég var sjálfur ekki nema 2ja ára þegar þetta kom út, en ég man að einhvern tímann þegar ég var krakki var ég alltaf að raula þetta... "berja, kýla, slá! farðu svo frá!"
Xsilence87 1 year ago
Yndislegt hvað Ólafur var mikið þá og er enn í dag milli tannana hjá fólki. Þeir ættu að endursýna þetta skaup og 1990. Ólafur Ragnar fær algerlega á baukinn.
Gunnarsas 2 years ago
Hahaha, snilld. Besta skaupið ;)
gorkur 2 years ago
Vá hvað ég man vel eftir þessu þótt ég hafi nú bara verið 5 ára þegar þetta skaup var en þetta er með betri skaupum :)
klarinetta 3 years ago