@PesiCool Ætli ég sé ekki einhverskonar blanda af anarkista og kommúnista. Annars hef ég aldrei sett límmiða á mig. Það sem skiptir mig til að mynda miklu máli er sjálfbærni og sanngirni.
@911Dagur (Ætlaði að bæta fleiru við í morgun, en ath.semdakerfið á youtube var e-ð bilað). En aðalástæðan fyrir þessari bólgu er óðaþensla peningakerfis umfram raunvirði. Það eru bankarnir sem ýta undir þetta. Mæli með að gúgla "money as debt" og líta yfir niðurstöðurnar.
Shitt hvað þið eruð miklir aumingjar, ég gæti gubbað á svona sníkjudýr.. Eruði samt ekki að djóka?? SKAPANDI???!!! ojjbara.. Það ætti að taka svona aumingja á togara og berja þetta til !! pappakassar !
Djöfull eruð þið miklir aumingjar,!! Það er skömm að sjá svona ógeðslegt pakk að vera að tala um það hvað það sé fínt að lifa á öðrum!!.. Vera á ríkisspena !! OJJ ég gæti gubbað!!
Annars er ekki hægt að túlka þessi orð þín á neinn annan máta en í samhengi við það velferðarkerfi sem við þekkjum í dag.
Einnig fannst mér mjög kostuglegt hvernig þú reyndir ekki að svara neinni af gagnrýninni sem nokkurnveginn allir sem skrifuðu eitthvað hingað beindu að ykkur. Þú ákvaðst frekar að taka mjög svo klassískt appeal to authority. Núna hefurðu samt annað tækifæri, svaraðu gagnrýninni og sýndu okkur að þú sért ekki jafn mikill kjáni og þú virðist vera.
Hvað varðar Friedman um velferðarkerfi, þá er einfaldast að vísa bara í eitthvert af myndböndum hans Leitaðu t.d. bara að milton friedman on welfare
Friedman fannst velferðarkerfi einfaldlega ekki ganga upp sem hugmynd. Hann að vísu studdi svokallaðan negative income tax, sem er mun betri hugmynd heldur en atvinnuleysisbætur eða álíka og ef þú varst að tala um það, hefðir þú þarft að taka það fram.
Svo talar Hayek engann veginn um eins grunnframfærslu og þið, og raunar er þessi texti hans(og raunar stór hluti Road to Serfdom) í hrópandi misræmi við hans raunverulegu hugmyndir, samanber aðrar bækur eftir hann. Hann var harðorður andstæðingur sósíalisma, ekki talsmaður hans.
Láttekki svona Smári, þú ert ekkert talsmaður hugmynda Hayek eða Friedmans, að minnsta kosti ekki í þessu myndbandi. Það getur vel verið þú hafir ætlað þér að boða eitthvað í líkingu við þá menn, en ef svo var, þá komst það engan veginn til skila. Þið talið beint út um að minnka framleiðslu.
Það er dásamlegt hvað það hafa komið mörg svör um þetta, sérstaklega frá fólki sem hefur ályktað að við værum fáfróð um hagfræði. Ég get svona í fljótu bragði nefnt í það minnsta sex nóbelsverðlaunahafa í hagfræði sem hafa mælt eindregið með því að einhverskonar grunnframfærslufyrirkomulag sé sett á: Milton Friedman, Herbert Simon, Friedrich von Hayek, Robert Solow og James Meade. Kannski eru þeir fleiri, en ég þekki það ekki.
"There is no reason why, in a society which has reached the general level of wealth ours has, the first kind of security should not be guaranteed to all without endangering general freedom; that is: some minimum of food, shelter and clothing, sufficient to preserve health. Nor is there any reason why the state should not help to organize a comprehensive system of social insurance in providing for those common hazards of life against which few can make adequate provision." -- F. von Hayek
@smarimc - Já þetta er úr bókinni The Road To Serfdom. Lestu restina af bókinni. Hayek var nefnilega ekki að mæla bót svona letingjadekurskerfi fyrir "skapandi" fólk eins og þið tvö talið um. Það er verið að tala um kerfi þar sem fólk er ekki látið út á guð og gaddinn þó það GETI EKKI séð fyrir sér, ef það lendir í ófyrirsjáanlegum aðstæðum eða aðstæðum sem mjög erfitt er að verja sig gegn. Ekki svo þú getir stundað dagdrauma og dáðst að blómunum. Þú hefur greinilega gjörsamlega misskilið þetta.
@krumma79: Þegar verið var að gera tilraunir með kommúnisma í Sovétinu (sem jú, enduðu mjög illa), þá var iðnbyltingu ekki enn lokið, og öld upplýsingatækni var enn langt undan.
Nú í dag er tæknin til staðar til þess að hafa virkilegt aðhald með þeim sem stýra ríkinu: Internetið. Það er loksins hægt að vera með raunverulegt beint lýðræði sem getur virkað jafn hratt og vel og hefðbundið þing. Beint lýðræði var hrein útópía fyrir tilkomu slíks samskiptamiðils.
@valdigurkaa: Í fyrsta lagi eru peningar ekki jafn verðmætir og maður er látinn halda. Í annan stað er hægt að afla verðmæta á annan hátt en með vinnu, sbr hugmyndasmíði og sjálfboðavinna (sem þau eru augljóslega ekki að flokka með sem þessa klassísku vinnu).
@ttcmp0 Ertu semsagt að segja að ég fer út og ætla að kaupa eitthvað fyrir 500 kall og ég vill borga með 500 kalli þá taka þeir ekki við honum því að hann er ekki jafn verðmætur og allir halda. Vilja þeir þá fá 1000 kall fyrir eitthvað sem kostar 500 eða á ég kannski að borga í kartöflum. Á sá sem tekur við þeim semsagt að byggja heila geymslu fyrir aftan afgreiðslukassan til að taka við öllum kartöflunum og agúrkunum og kjötbitunum sem ég borga með í staðinn fyrir að bara taka við pappír
Þetta er nú ekkert úr lausu lofti gripið hjá þeim, bara frekar illa kynnt. Ég myndi ekki alveg kynna þessar hugmyndir fyrir Íslendingum sem aukið atvinnuleysi á þessum tímum. En sambærilegar hugmyndir má finna hjá mönnum sem er alvara með betri veröld og eru virkilega að vinna að því. T.d. Jacque Fresco og hans Venus Project. Svo eru RSA (Royal Society for the Encouragement of Arts) að leggja fram ýmsar góðar hugmyndir sem minna á það að núverandi kerfi er byggt upp samhliða iðnbyltingunni.
Ég fæ þetta bara ekki til að ganga upp. Vinna minna til að njóta meiri lífsgæða og að ríkið eigi að skaffa manni grunnframfærslu þó maður nenni ekki að vinna. Það hlýtur hver heilvita maður að vita að til þess að skapa auð þarf að framleiða. Ef við liggjum öll í leti og reykjum krakk (eins og þessi tvö virðast gera), hver á þá að skapa þau verðmæti sem eiga að tryggja krakkhausunum grunnframfærslu á meðan þau skemmta sér og "hugsa"?
@krumma79 Það þarf að endurhugsa kerfið í heild. Mér líst engan veginn á hvert heimurinn er að stefna með "gjaldmiðil" og efnahagskerfi nútímans, enda eru þau algjör blekking. Við búum í heimi sem hefur takmarkað magn auðlinda og við ættum að hafa betri, sameiginlegri stjórn á þeim til þess að koma í veg fyrir að hlutum verði sóað. Á sama tíma ætti að afnema, gjaldmiðil og allt það kjaftæði, setja á fót beint lýðræði, setja öll fyrirtæki í almannaeigu og dreifa auðnum jafnt til allra
@PesiCool Já þú segir nokkuð. Hefur kommúnisminn ekki kennt ykkur neitt? Og hvað áttu við með að "afnema gjaldmiðil og allt það kjaftæði"? Viltu semsagt bara breyta landinu í eitt stórt samyrkjubú og láta ríkið sjá um að skipta auðnum jafnt á milli okkar allra? afsakaðu á meðan ég KAFNA ÚR HLÁTRI!!!
Hélt að þessi hugsjón hefði hrunið með kommúnismanum. En hey, það eru víst alltaf til einhverjir vitleysingar sem nenna ekki að lesa söguna til að læra af henni.
Hugsjónin kommúnismi hefur aldrei verið reynd að fullnustu og það er staðreynd að við getum ekki haldið áfram með þessum hætti. Það er alltof mikill ójöfnuður, stéttaskipting, mengun, þurrausun náttúruauðlinda, framleiðsla á stórhættulegum efnum o.s.frv. Við búum í takmörkuðum heimi og erum að reyna á þolmörk hans. Eina sem gjaldmiðill gerir er að veita einstaklingum alltof mikið vald og greiðari aðgang að auðlindum umfram aðra, hann er blekking.
@PesiCool Hahaha veistu það þú ert alveg dásemd!!! Takk fyrir að koma mér til að hlægja almennilega. Kommúnismahugsjónin hefur verið reynd með þeim afleiðingum að milljónir sultu til dauða. Ertu til í að láta reyna á það aftur og sjá hvort færri svelta til dauða í þetta sinn? Náttúruauðlindir eru takmarkaðar já, en ætlaru að halda því fram að þær hafi verið nýttar á skilvirkari hátt í Rússlandi kommúnismanns? Þú ert brandari!!
Þetta er fullkomið dæmi um almenna fáfræði í garð misskildustu hugmyndafræði jarðarinnar.
Sovétríkin voru einræðisríki, rétt eins og N-Kórea. Þau stóðu engan veginn fyrir kommúnisma og þú ættir kannski að lesa kommúnistaávarpið áður en þú opnar munninn aftur.
@PesiCool Mér heyrist þér ekkert veita af því að lesa það sjálf/um. Ég hef lesið ýmislegt um kommúnismann, hugsjónina á bak við hann og afleiðingar tilraunarinnar í Rússlandi og víðar. Og fyrst þú veist svona mikið um málið, viltu þá útskýra hvernig þú sérð fyrir þér skilvirka nýtingu auðlinda í þínu draumahagkerfi þar sem ríkið úthlutar gæðunum jafnt til allra. Hvað um þá sem nenna ekki að vinna í því hagkerfi? Er sanngjarnt að þeir fái jafn mikið að éta og sá sem leggur sig allan fram?
@krumma79 Í skipulögðu hagkerfi væri mun betri nýting á náttúruauðlindum í samræmi við eftirspurn. Þar sem einkahagsmunir eru horfnir er miklu frekar litið til hagsmuna almennings og það er aðeins framleitt það sem fólkið þarf og allir munu fá aðgang að nauðsynjavörum eins og t.d. mat, rafmagni og húsnæði.
Það eru til ótrúlega mörg dæmi um gríðarlega sóun í kapítalismanum; fólk rústar heilu uppskerum til að vara verði meira virði, hús eru tóm og fólk lifir á götunni, miljónir eru að deyja úr...
@krumma79 miljónir eru að deyja úr hungursneyð á meðan við erum að henda matnum, við erum alltaf að berjast um að þróa nýja og nýja hluti sem eru í raun og veru andskoti tilgangslausir og við reynum að láta þá eyðileggjast sem fyrst svo við getum selt meira, í leiðinni hendir fólk ótrúlegu magni hluta í ruslið sem annars mættu vera nýttir í miklu betri hluti. Einnig koma einkahagsmunir í veg fyrir að mannkynið áorki ótrúlega hluti. Í sameiningu hefur þjóðin miklu meira vald en einstaklingar
@krumma79 Þú sérð bara hvernig verið er að afskrifa skuldir miljarðamæringa á meðan fólk er að fremja sjálfsmorð úr örvæntingu.
Það eru margir sem nenna ekki að vinna í þessu samfélagi líka, það væri alveg hægt að setja á fót einhvers konar vinnukvóta sem tilneyðir einstaklinga til að vinna ákveðið marga tíma á viku í hag samfélagsins til þess að fá að njóta uppskeru þess. Á sama tíma er miklu meira frelsi fyrir einstaklinginn því hann getur fundið starf sem hann elskar í stað þess að sækjast.
@krumma79 eftir starfi byggðu á hversu há launin eru. Þá tel ég að fólk verði miklu ánægðara með líf sitt og verði enn viljugra til að vinna. Margir einfaldlega sturlast af aðgerðarleysi og ef ég væri án atvinnu eða ekki í skóla myndi ég örugglega sinna sjálfboðaliðastarfi.
Eins og vitur maður eitt sinn sagði:
"Starfaðu við það sem þú elskar að gera og þú munt ekki þurfa að vinna einn dag ævi þinnar."
@PesiCool Kommúnismi virkar ekki því að það er alltaf einhver sem er gráðugur og þú getur kannski pælt aðeins í því afhverju kommúnismi hefur aldrei gengið upp og verið afmyndaður af fólki og hvað það hefur að gera með græðgi mannsins. En ekki einusinni láta þér detta í hug að það sé hægt að stoppa græðgi mannsins, við erum rándýr, við drepum, við tökum það sem við viljum og við svíkjum.
@911Dagur Vitlaust farið að, í nútímanum eru til margar aðrar leiðir. Segðu mér, drepur þú, tekur þú það sem þú vilt og svíkuru? Alltof margir segja það "mannlegt eðli" að gera hluti sem 98% mannkynsins gera svo ekki...
Umhverfi og uppeldi ákvarðar að mjög miklu leyti hvernig "eðli" mannsins verður. Það er óneitanleg staðreynd að hugarfar okkar aðlagast mjög vel að ytra umhverfi. Í spilltu og gölluðu kerfi er mun meira svigrúm fyrir spillingu og græðgi en í kommúnisma er þeim útrýmt, einnig á
@PesiCool ég geri það ekki nei, kannski illa orðað hjá mér þegar ég sagði það en það sem ég meina er að það mun alltaf vera fólk sem mun drepa og svíkja til síns eigin hags.
@911Dagur ....efnislægan máta. Ég spyr þig. Heldur þú að mannlegt eðli hverfi undir kapítalísku kerfi og heldurðu í alvöru að það sé betra fyrir mannkynið að vera undir kerfi sem vietir svigrúm fyrir ótrúlega einkahagsmuni, græðgi og spillingu?
@PesiCool ég hef aldrei sagt að mér finnist það betra fyrir mannkynið að vera undir gráðugu og spilltu kerfi. Kapítalismi og kommúnismi eru bæði góðar hugmyndir sem hafa bara verið framkvæmdar vitlaust og afmyndaðar.
@krumma79 Í heiminum er bara til ákveðið magn af auðlindum og í frjálslyndi og einstaklingshyggju nútímans erum við að sóa gríðarlegu magni af þeirra. Evrópusambandið hendir samanlagt 90 tonnum af mat í ruslið á meðan fólk í afríku er bókstaflega að deyja úr hungursneyðum. Við finnum ódýrustu leiðirnar til að framleiða vörur og dælum stórhættulegum efnið út í náttúruna.
Svo má alls ekki gleyma óréttlætinu og stéttaskiptingunni. Ég hlæ að þér ef þú heldur að við getum haldið áfram svona...
@PesiCool Bwaaaaaahahaha.. og Það dó nefnilega enginn í samyrkjubúunum í Rússlandi?!!?!´og þar var engin spilling og ekkert óréttlæti, allir jafnir og allir hamingjusamir valhoppandi um fagurgróna akrana!?! Greyið mitt, áður en þú gerir þig að meira fífli þá mæli ég með að þú lærir lágmarks hagfræði. Prófaðu að googla "skilvirkni". það ætti að vera ágætis byrjun fyrir þig. og í GUÐANA BÆNUM ekki fara út í stjórnmálabaráttu, EVER!
@krumma79 "bwahahahaha" er ekki ástandið svo ótrúlega frábært í flestum kapítalistaríkjum heimsins þar sem fólk er hoppandi um fallegar gangstéttirnar og glerbyggingarnar með xbox360 í annarri hönd og nýjar diesel buxur í hinni?
Ohh wait, það er ótrúleg stéttaskipting og þetta kerfi virkar kannski fyrir suma, en alls ekki fyrir meirihlutann. Þú mátt lifa í þeirri blekkingu að telja að þú getir orðið jafn ríkur og þeir ríkustu einn daginn, það er nú það sem þeir vilja að þú haldir.
@PesiCool No offense til þín Pesi en kommúnismi virkar ekki og mun aldrei, hann gengur á móti eðlisfari manneskjunnar. Það eru kannski ekki allir hoppandi úr gleði í kapítalistaríkjum en fólk getur allavegna átt drauma, gert eitthvað úr sér. Kapítalismi er alls ekki fullkominn og kommúnismi er það ekki heldur. En samanblanda av þessum tveimur kerfum virkar fínt. Þið verðið að skilja að það er ekki til nóg handa öllum og til þess að einn vinni, þá verður annar að tapa.
@krumma79 Í samræmi við þeirra þörf. Það væri hægt að hafa vinnukvóta eða einhvers konar hvata sem rekur samfélagið áfram en kerfið sem við búum við í dag er einfaldlega siðferðislega rangt og mun alls ekki ganga til frambúðar.
Sko. ESB ályktar, eftir mörgum rannsóknum, að hugmyndin um grunnframfærslu sé sniðug.
Auðvitað eru þau ekki að hvetja fólk til iðjuleysis. Enda myndi fólk veslast upp ef það hefði ekkert fyrir stafni nema innantóma skemmtun. Og ég vænti þessi ekki að slíku fólki yrði leyft að hanga á okkur hinum sem færum eitthvað fram til þjóðfélagsins.
Það sem þau eru að segja (eins og ég skil það) er að fólk þurfi ekki að taka þessari klassísku 9-5 vinnu svo alvarlega. ...
...það er ekki ástæðulaust að Íslendingar hafa notið einna mesta lífsgæða landa heimsins, enda hefur þjóðarframleiðsla á mann verið með því hæsta per íbúa undanfarið (top 10% rank).
Það verður því aldrei hægt að framleiða minna og njóta meiri lífsgæða í almennum skilningi. Þeir sem vinna ekki þurfa allaf að fá lífgæðin greidd af þeim sem vinna eða skapa verðmæti. Að auka það umfram það sem nú er hefur bara neikvæð áhrif.
Það er gott og blessað að velta fyrir sér hvernig má betrumbæta samfélagið okkar - en hins vegar finnst mér þið vera á mjög hálum ís í þessari umræðu ykkar. Það eru of margar rangfærslur sem ganga ekki upp.
"...varðandi rétt komandi kynslóða er nauðsynlegt að stefna í átt að samfélagi sem framleiðir minna en hugsar og skemmtir sér meira"
Lífsgæði þjóða (og ég gef mér að þau séu amk af einhverju leyti efnisleg) hafa alltaf fylgt verðmætasköpun hennar. og...
@gudsgis Kannski minni framleiðsla en þá erum við líka að minnka mengun og hætta ða framleiða tilgangslaust afvegaleiðandi rusl, við sem heild gætum haft miklu meira vald en einstaklingar og þ.a.l. hrundið af stórum verkefnum til að útrýma hungursneyð, atvinnuleysi, heimilisleysi o.s.frv...
Að skilja hagfræði er að skilja það að peningar eru skuldir almennings og við erum öll rænd dags daglega af bönkum í hvert skipti sem við "græðum" peninga.
Það sem þau tvö eru að benda á er miklu eðlilegra samfélag en það sem við byggjum nú. Hvernig getur það verið að við vinnum jafn mikið (ef ekki meira) en fyrir 50 árum, þrátt fyrir allar byltingar í framleiðslutækni? Getum við virkilega ekki unnið minna?
Með allar þessar efnislægu nautnir okkar erum við bæði að þurrausa náttúrauðlindirnar, rústa plánetunni og skapa fullt af vandamálum á öllum sviðum fyrir aðra.
Afnám gjaldmiðils, beint lýðræði, allt í almenningseigu (ég tel sjálfur að eign á landi og grunnlífsnauðsynjum sé siðferðislega rangt og skil ekki hver tileinkaði sér réttinn til að eigna sér land fyrst af öllum), skipulagður efnahagur, vinnukvóti, allt í sameign og þ.a.l. allt frítt
@ttcmp0 Auðvitað gætum við verið að vinna minna. Þau hinsvegar koma ekkert inná ástæðurnar fyrir því afhverju og raunar stinga bara uppá því að minnka framleiðslu, ekki auka framleiðni.
Auðvitað gætum við unnið mun minna ef ríkisbáknið og seðlabankasvindlið væru bæði afnumin. Það kemur því sem þau eru að tala um hinsvegar ekkert við.
@Trogzinsky: Reyndar gæti ríkið prentað út endalaust af peningum, og peningar (eins og þeir eru í dag) eru að mestu verðlaus pappír. Ef þér finnst þeirra hugmyndir klikkaðar, þá legg ég til að þú lærir um peningakerfið :)
@ttcmp0 Ef þeir prenta peninga verður peningurinn verðlausari, og það er ekki satt að þetta sé að mestu verðlaus pappír heldur liggur vinna og verðmæti á bak við hann og ef að peningurinn verður verðlausari fara verðin upp útaf verðbólgu og fólk mun hvorteðer ekki eiga fyrir neinu þá.
@911Dagur Hvers vegna heldur þú að líter af mjólk hafi kostað 10kr í "gamla daga" en kostar núna 150 kr? Ein, löng, samfelld verðbólga. Það er nefninlega sífellt verið að þynna út peningana okkar með hverju árinu. Bankarnir búa til peninga í hvert skipti sem lán er tekið.
@ttcmp0 Ætla ekker að mótmæla því að peningarnir séu þynntir út en þessvegna eru líka laun hækkuð í samræmi. Launin voru líka miklu lægri í "gamla daga" og ef að 1L af mjólk kostaði enþá 10kr þá væru launin okkar líka tífalt lægri eða meira. Svo er auðvitað fólksfjölgun, fleira fólk = fleiri hlutir = meiri eftirspurn eftir hlutum = hærra verð á hlutum = hærri laun hjá þeim sem framleiða þá = hærri eftirspurn og svo gengur þetta í hringi.
Haha eruð þið að grínast...hvernig haldið þið að ríkið/sveitarfélögin fái tekjur til að greiða þeim sem eru atvinnulausir lágmarksframfærslu ?
Það er ekki eins og ríkið geti bara prentað endalaust af peningum það þurfa að vera einhver verðmæti (til að mynda framleiddar einingar af vörum sem nóg er til af skv.ykkur) á bakvið þá seðla annars er þetta bara verðlaus pappír !
@gudmdharalds Þvert á móti. Ef frídögum yrði fækkað, þá gæti Ísland mögulega borgað upp allar sínar skuldir eftir örfá ár. Ef ég man rétt, þá var þetta gert í frönsku byltingunni með ágætis árangi.
@CharlieBrenja Það er líklega varhugavert, hafðu í huga að hér á landi er framleiðsla per vinnustund mun minni en á öllum norðurlöndunum og lág meðal evrópulanda. Aukning vinnustunda gæti haft í för með sér lítilfjörlega aukningu í afköstum - en lífsgæði yrðu skert.
@CharlieBrenja Þvert á móti. Ef um er að kenna einhvers konar þreytu sem fólk nær aldrei úr sér, þá myndi hófleg aukning frídaga líklega auka framleiðni. Það eru nokkur merki þess að um slíka þreytu sé að ræða.
@gudmdharalds Það hefur sýnt sig og sannað að þeir sem fá t.d. að hvíla sig í einhvern tímann um miðdegið (síesta) eru miklu virkari og skila af sér meiri vinnu afganginn af vinnudeginum
Til að draga saman, hugmyndirnar ykkar eru ógeðslegar, stórhættulegar, fáránlegar og myndu leiða til fátæks, vesæls og óréttláts samfélags. Þið skiljið ekki mannlegt eðli, þið hafið ekki hugmynd um hvernig hagfræði virkar og þið eruð með fáránlega útþanið sense of entitlement.
@TheJaimeFoster Hugmyndin um peninga er ógeðsleg, stórhættuleg, fáránleg og hefur þegar leitt til fátæks, vesæls og óréttláts samfélags, einmitt sökum mannlegs eðlis þeirra sem höfðu völdin þegar kerfinu var komið á.
Það sem þau eru að tala um eru fallegar hugsjónir. Heimur þar sem ekki er framleitt um of, allir eiga rétt til grunnframfærslu (sem ESB samþykkti víst nýlega - þekki það ekki nógu vel samt) og þar sem fólk hefur meira frelsi til nýsköpunar og sjálfboðavinnu. ...
Að slíta framleiðandann frá framleiðslunni kallast sérhæfing(ekki ósérhæfing, kjánarnir ykkar) og er ástæðan fyrir því að við Íslendingar búum ekki lengur í moldarkofum.
Að stefna á 40-50% atvinnuleysi er svo aftur, ógeðslegt. Þið viljið s.s. að helmingur þjóðarinnar haldi hinum helmingnum uppi með því að vinna drepleiðinlega vinnu(ykkar orð) á meðan hinn helmingurinn verður í einhverju rosalega "skapandi"?
@TheJaimeFoster ... Auðvitað eru þau ekki að hvetja til iðjuleysis og leti. Það eru fjöldamargar leiðir til þess að komast hjá því að ala uppi lata þjóð í svona kerfi.
Smári talar líka um hvað hann væri til í að vera atvinnulaus og hafa meiri frítíma. Gott að vita að þér finnst eðlilegt og sjálfsagt að vera sníkjudýr á restinni af samfélaginu, að þér finnist í lagi gefa ekkert en þiggja helling. Falleg og réttlát hugsun þar á ferð.
Þið minnist einnig á að með því að framleiða minna færi fólk að hugsa og skemmta sér meira. Þið skiljið nokkuð augljóslega ekki mannlegt eðli. Fólk er ekkert í því að framleiða miklu meira en það þarf á kostnað þess að skemmta sér. Það er enginn það fylltur sjálfshatri að hann neiti sér svoleiðis um skemmtun. Fólk framleiðir þangað til að það á nóg til þess að uppfylla þarfir sínar, bæði grunnþarfir og svo hluti eins og að skemmta sér.
Svo talið þið helling um "til hvers að vinna, það er nóg til" og hvernig fólk ætti frekar að eiga meiri frítíma og eitthvað. Hvernig er það réttlátt að sumir fái þennan aukafrítíma og þurfi ekki að vinna í drepleiðinlegri vinnu á meðan að aðrir þurfa að gera það? Það er eins og þið hugsið nákvæmlega ekkert um hvaða afleiðingar þessar hugmyndir ykkar hefðu í för með sér, en þær eru auðvitað fáránlegt og algjört óréttlæti.
Sú hugmynd að allir hafi rétt á því að hafa einhverjar lágmarkstekjur og geta séð fyrir sér án þess að þurfa að vinna er fáránleg. Hún er ekki bara óraunhæf heldur er hún ógeðsleg í eðli sínu. Það að einhver geri kröfu um að hafa "rétt" til grunnframfærslu þýðir ekkert annað en að hann geri kröfu um það að hafa "rétt" á vinnu og tíma annarra. Með öðrum orðum, með því að gera þessa kröfu um réttindi ertu í raun að gera kröfu um að einhver þjóni þér skilyrðislaust, amk tímabundið. Það er þrælkun.
Þetta er sniðugt. Vildi að allir myndu hugsa eins og þið. Þá myndi enginn vinna. Allir fengju eins mikinn frítíma eins og þeir vildu. Fólk gæti skapað eins og það vildi. Er ekki bara málið að hækka atvinnuleysisbætur í 350 þús?

ttcmp0 1 year ago

Barnykay 1 year ago

Fólk er miklu sérhæfðara í dag heldur en fyrir iðnbyltinguna ....................IDIOTS
911Dagur 1 year ago
Það ætti að skjóta þetta fólk
hjalti150 1 year ago
@hjalti150 Bannað að vera vondur við þá sem eiga bágt :)
Rusl2006 1 year ago
Annars er ekki hægt að túlka þessi orð þín á neinn annan máta en í samhengi við það velferðarkerfi sem við þekkjum í dag.
Einnig fannst mér mjög kostuglegt hvernig þú reyndir ekki að svara neinni af gagnrýninni sem nokkurnveginn allir sem skrifuðu eitthvað hingað beindu að ykkur. Þú ákvaðst frekar að taka mjög svo klassískt appeal to authority. Núna hefurðu samt annað tækifæri, svaraðu gagnrýninni og sýndu okkur að þú sért ekki jafn mikill kjáni og þú virðist vera.
TheJaimeFoster 1 year ago
Hvað varðar Friedman um velferðarkerfi, þá er einfaldast að vísa bara í eitthvert af myndböndum hans Leitaðu t.d. bara að milton friedman on welfare
Friedman fannst velferðarkerfi einfaldlega ekki ganga upp sem hugmynd. Hann að vísu studdi svokallaðan negative income tax, sem er mun betri hugmynd heldur en atvinnuleysisbætur eða álíka og ef þú varst að tala um það, hefðir þú þarft að taka það fram.
TheJaimeFoster 1 year ago
Comment removed
TheJaimeFoster 1 year ago
Svo talar Hayek engann veginn um eins grunnframfærslu og þið, og raunar er þessi texti hans(og raunar stór hluti Road to Serfdom) í hrópandi misræmi við hans raunverulegu hugmyndir, samanber aðrar bækur eftir hann. Hann var harðorður andstæðingur sósíalisma, ekki talsmaður hans.
TheJaimeFoster 1 year ago
Láttekki svona Smári, þú ert ekkert talsmaður hugmynda Hayek eða Friedmans, að minnsta kosti ekki í þessu myndbandi. Það getur vel verið þú hafir ætlað þér að boða eitthvað í líkingu við þá menn, en ef svo var, þá komst það engan veginn til skila. Þið talið beint út um að minnka framleiðslu.
TheJaimeFoster 1 year ago
Það er dásamlegt hvað það hafa komið mörg svör um þetta, sérstaklega frá fólki sem hefur ályktað að við værum fáfróð um hagfræði. Ég get svona í fljótu bragði nefnt í það minnsta sex nóbelsverðlaunahafa í hagfræði sem hafa mælt eindregið með því að einhverskonar grunnframfærslufyrirkomulag sé sett á: Milton Friedman, Herbert Simon, Friedrich von Hayek, Robert Solow og James Meade. Kannski eru þeir fleiri, en ég þekki það ekki.
smarimc 1 year ago
"There is no reason why, in a society which has reached the general level of wealth ours has, the first kind of security should not be guaranteed to all without endangering general freedom; that is: some minimum of food, shelter and clothing, sufficient to preserve health. Nor is there any reason why the state should not help to organize a comprehensive system of social insurance in providing for those common hazards of life against which few can make adequate provision." -- F. von Hayek
smarimc 1 year ago
@smarimc - Já þetta er úr bókinni The Road To Serfdom. Lestu restina af bókinni. Hayek var nefnilega ekki að mæla bót svona letingjadekurskerfi fyrir "skapandi" fólk eins og þið tvö talið um. Það er verið að tala um kerfi þar sem fólk er ekki látið út á guð og gaddinn þó það GETI EKKI séð fyrir sér, ef það lendir í ófyrirsjáanlegum aðstæðum eða aðstæðum sem mjög erfitt er að verja sig gegn. Ekki svo þú getir stundað dagdrauma og dáðst að blómunum. Þú hefur greinilega gjörsamlega misskilið þetta.
runarolsen 7 months ago
@krumma79: Þegar verið var að gera tilraunir með kommúnisma í Sovétinu (sem jú, enduðu mjög illa), þá var iðnbyltingu ekki enn lokið, og öld upplýsingatækni var enn langt undan.
Nú í dag er tæknin til staðar til þess að hafa virkilegt aðhald með þeim sem stýra ríkinu: Internetið. Það er loksins hægt að vera með raunverulegt beint lýðræði sem getur virkað jafn hratt og vel og hefðbundið þing. Beint lýðræði var hrein útópía fyrir tilkomu slíks samskiptamiðils.
ttcmp0 1 year ago
Haha, ég horfði á þetta og hélt að þetta væri sketch :D
Síðan las í neðanmálsgreinina (eða hvað sem þessi texti undir myndbandinu er kallaður) og gerði mér grein fyrir því að þetta væru bara furðufuglar.
bollasupa 1 year ago 6
@valdigurkaa: Í fyrsta lagi eru peningar ekki jafn verðmætir og maður er látinn halda. Í annan stað er hægt að afla verðmæta á annan hátt en með vinnu, sbr hugmyndasmíði og sjálfboðavinna (sem þau eru augljóslega ekki að flokka með sem þessa klassísku vinnu).
ttcmp0 1 year ago
@ttcmp0 Ertu semsagt að segja að ég fer út og ætla að kaupa eitthvað fyrir 500 kall og ég vill borga með 500 kalli þá taka þeir ekki við honum því að hann er ekki jafn verðmætur og allir halda. Vilja þeir þá fá 1000 kall fyrir eitthvað sem kostar 500 eða á ég kannski að borga í kartöflum. Á sá sem tekur við þeim semsagt að byggja heila geymslu fyrir aftan afgreiðslukassan til að taka við öllum kartöflunum og agúrkunum og kjötbitunum sem ég borga með í staðinn fyrir að bara taka við pappír
911Dagur 1 year ago
Hahaha vitleysingar.
Vinna=verðmæti
verðmæti=peningar.
Getið ekki látt alla fá peninga án þess að þeir veiti vinnuframlag.
valdigurkaa 1 year ago
Come on.. þetta hlítur að vera grín ??????????????
einhver til í að staðfesta það fyrir mig... plz....
kristjanbl 1 year ago 4
Þetta er nú ekkert úr lausu lofti gripið hjá þeim, bara frekar illa kynnt. Ég myndi ekki alveg kynna þessar hugmyndir fyrir Íslendingum sem aukið atvinnuleysi á þessum tímum. En sambærilegar hugmyndir má finna hjá mönnum sem er alvara með betri veröld og eru virkilega að vinna að því. T.d. Jacque Fresco og hans Venus Project. Svo eru RSA (Royal Society for the Encouragement of Arts) að leggja fram ýmsar góðar hugmyndir sem minna á það að núverandi kerfi er byggt upp samhliða iðnbyltingunni.
HawkSig 1 year ago
Comment removed
darknorth777 1 year ago
Ég fæ þetta bara ekki til að ganga upp. Vinna minna til að njóta meiri lífsgæða og að ríkið eigi að skaffa manni grunnframfærslu þó maður nenni ekki að vinna. Það hlýtur hver heilvita maður að vita að til þess að skapa auð þarf að framleiða. Ef við liggjum öll í leti og reykjum krakk (eins og þessi tvö virðast gera), hver á þá að skapa þau verðmæti sem eiga að tryggja krakkhausunum grunnframfærslu á meðan þau skemmta sér og "hugsa"?
Þið eruð bara plain RUGLUÐ!
krumma79 1 year ago
@krumma79 Það þarf að endurhugsa kerfið í heild. Mér líst engan veginn á hvert heimurinn er að stefna með "gjaldmiðil" og efnahagskerfi nútímans, enda eru þau algjör blekking. Við búum í heimi sem hefur takmarkað magn auðlinda og við ættum að hafa betri, sameiginlegri stjórn á þeim til þess að koma í veg fyrir að hlutum verði sóað. Á sama tíma ætti að afnema, gjaldmiðil og allt það kjaftæði, setja á fót beint lýðræði, setja öll fyrirtæki í almannaeigu og dreifa auðnum jafnt til allra
PesiCool 1 year ago
@PesiCool Já þú segir nokkuð. Hefur kommúnisminn ekki kennt ykkur neitt? Og hvað áttu við með að "afnema gjaldmiðil og allt það kjaftæði"? Viltu semsagt bara breyta landinu í eitt stórt samyrkjubú og láta ríkið sjá um að skipta auðnum jafnt á milli okkar allra? afsakaðu á meðan ég KAFNA ÚR HLÁTRI!!!
Hélt að þessi hugsjón hefði hrunið með kommúnismanum. En hey, það eru víst alltaf til einhverjir vitleysingar sem nenna ekki að lesa söguna til að læra af henni.
krumma79 1 year ago
@krumma79 Hvaða sögu varst þú eiginlega að lesa?
Hugsjónin kommúnismi hefur aldrei verið reynd að fullnustu og það er staðreynd að við getum ekki haldið áfram með þessum hætti. Það er alltof mikill ójöfnuður, stéttaskipting, mengun, þurrausun náttúruauðlinda, framleiðsla á stórhættulegum efnum o.s.frv. Við búum í takmörkuðum heimi og erum að reyna á þolmörk hans. Eina sem gjaldmiðill gerir er að veita einstaklingum alltof mikið vald og greiðari aðgang að auðlindum umfram aðra, hann er blekking.
PesiCool 1 year ago
@PesiCool Hahaha veistu það þú ert alveg dásemd!!! Takk fyrir að koma mér til að hlægja almennilega. Kommúnismahugsjónin hefur verið reynd með þeim afleiðingum að milljónir sultu til dauða. Ertu til í að láta reyna á það aftur og sjá hvort færri svelta til dauða í þetta sinn? Náttúruauðlindir eru takmarkaðar já, en ætlaru að halda því fram að þær hafi verið nýttar á skilvirkari hátt í Rússlandi kommúnismanns? Þú ert brandari!!
krumma79 1 year ago
@krumma79
Þetta er fullkomið dæmi um almenna fáfræði í garð misskildustu hugmyndafræði jarðarinnar.
Sovétríkin voru einræðisríki, rétt eins og N-Kórea. Þau stóðu engan veginn fyrir kommúnisma og þú ættir kannski að lesa kommúnistaávarpið áður en þú opnar munninn aftur.
PesiCool 1 year ago
@PesiCool Mér heyrist þér ekkert veita af því að lesa það sjálf/um. Ég hef lesið ýmislegt um kommúnismann, hugsjónina á bak við hann og afleiðingar tilraunarinnar í Rússlandi og víðar. Og fyrst þú veist svona mikið um málið, viltu þá útskýra hvernig þú sérð fyrir þér skilvirka nýtingu auðlinda í þínu draumahagkerfi þar sem ríkið úthlutar gæðunum jafnt til allra. Hvað um þá sem nenna ekki að vinna í því hagkerfi? Er sanngjarnt að þeir fái jafn mikið að éta og sá sem leggur sig allan fram?
krumma79 1 year ago
@krumma79 Í skipulögðu hagkerfi væri mun betri nýting á náttúruauðlindum í samræmi við eftirspurn. Þar sem einkahagsmunir eru horfnir er miklu frekar litið til hagsmuna almennings og það er aðeins framleitt það sem fólkið þarf og allir munu fá aðgang að nauðsynjavörum eins og t.d. mat, rafmagni og húsnæði.
Það eru til ótrúlega mörg dæmi um gríðarlega sóun í kapítalismanum; fólk rústar heilu uppskerum til að vara verði meira virði, hús eru tóm og fólk lifir á götunni, miljónir eru að deyja úr...
PesiCool 1 year ago
@krumma79 miljónir eru að deyja úr hungursneyð á meðan við erum að henda matnum, við erum alltaf að berjast um að þróa nýja og nýja hluti sem eru í raun og veru andskoti tilgangslausir og við reynum að láta þá eyðileggjast sem fyrst svo við getum selt meira, í leiðinni hendir fólk ótrúlegu magni hluta í ruslið sem annars mættu vera nýttir í miklu betri hluti. Einnig koma einkahagsmunir í veg fyrir að mannkynið áorki ótrúlega hluti. Í sameiningu hefur þjóðin miklu meira vald en einstaklingar
PesiCool 1 year ago
@krumma79 Þú sérð bara hvernig verið er að afskrifa skuldir miljarðamæringa á meðan fólk er að fremja sjálfsmorð úr örvæntingu.
Það eru margir sem nenna ekki að vinna í þessu samfélagi líka, það væri alveg hægt að setja á fót einhvers konar vinnukvóta sem tilneyðir einstaklinga til að vinna ákveðið marga tíma á viku í hag samfélagsins til þess að fá að njóta uppskeru þess. Á sama tíma er miklu meira frelsi fyrir einstaklinginn því hann getur fundið starf sem hann elskar í stað þess að sækjast.
PesiCool 1 year ago
@krumma79 eftir starfi byggðu á hversu há launin eru. Þá tel ég að fólk verði miklu ánægðara með líf sitt og verði enn viljugra til að vinna. Margir einfaldlega sturlast af aðgerðarleysi og ef ég væri án atvinnu eða ekki í skóla myndi ég örugglega sinna sjálfboðaliðastarfi.
Eins og vitur maður eitt sinn sagði:
"Starfaðu við það sem þú elskar að gera og þú munt ekki þurfa að vinna einn dag ævi þinnar."
PesiCool 1 year ago
@PesiCool Kommúnismi virkar ekki því að það er alltaf einhver sem er gráðugur og þú getur kannski pælt aðeins í því afhverju kommúnismi hefur aldrei gengið upp og verið afmyndaður af fólki og hvað það hefur að gera með græðgi mannsins. En ekki einusinni láta þér detta í hug að það sé hægt að stoppa græðgi mannsins, við erum rándýr, við drepum, við tökum það sem við viljum og við svíkjum.
911Dagur 1 year ago
@911Dagur Vitlaust farið að, í nútímanum eru til margar aðrar leiðir. Segðu mér, drepur þú, tekur þú það sem þú vilt og svíkuru? Alltof margir segja það "mannlegt eðli" að gera hluti sem 98% mannkynsins gera svo ekki...
Umhverfi og uppeldi ákvarðar að mjög miklu leyti hvernig "eðli" mannsins verður. Það er óneitanleg staðreynd að hugarfar okkar aðlagast mjög vel að ytra umhverfi. Í spilltu og gölluðu kerfi er mun meira svigrúm fyrir spillingu og græðgi en í kommúnisma er þeim útrýmt, einnig á
PesiCool 1 year ago
@PesiCool ég geri það ekki nei, kannski illa orðað hjá mér þegar ég sagði það en það sem ég meina er að það mun alltaf vera fólk sem mun drepa og svíkja til síns eigin hags.
911Dagur 1 year ago
@911Dagur ....efnislægan máta. Ég spyr þig. Heldur þú að mannlegt eðli hverfi undir kapítalísku kerfi og heldurðu í alvöru að það sé betra fyrir mannkynið að vera undir kerfi sem vietir svigrúm fyrir ótrúlega einkahagsmuni, græðgi og spillingu?
PesiCool 1 year ago
@PesiCool ég hef aldrei sagt að mér finnist það betra fyrir mannkynið að vera undir gráðugu og spilltu kerfi. Kapítalismi og kommúnismi eru bæði góðar hugmyndir sem hafa bara verið framkvæmdar vitlaust og afmyndaðar.
911Dagur 1 year ago
@911Dagur *Heldur en kerfi sem miðast að því að útrýma slíku "mannlegu eðli" eins og þú kallar það?
PesiCool 1 year ago
@krumma79 Í heiminum er bara til ákveðið magn af auðlindum og í frjálslyndi og einstaklingshyggju nútímans erum við að sóa gríðarlegu magni af þeirra. Evrópusambandið hendir samanlagt 90 tonnum af mat í ruslið á meðan fólk í afríku er bókstaflega að deyja úr hungursneyðum. Við finnum ódýrustu leiðirnar til að framleiða vörur og dælum stórhættulegum efnið út í náttúruna.
Svo má alls ekki gleyma óréttlætinu og stéttaskiptingunni. Ég hlæ að þér ef þú heldur að við getum haldið áfram svona...
PesiCool 1 year ago
@PesiCool Bwaaaaaahahaha.. og Það dó nefnilega enginn í samyrkjubúunum í Rússlandi?!!?!´og þar var engin spilling og ekkert óréttlæti, allir jafnir og allir hamingjusamir valhoppandi um fagurgróna akrana!?! Greyið mitt, áður en þú gerir þig að meira fífli þá mæli ég með að þú lærir lágmarks hagfræði. Prófaðu að googla "skilvirkni". það ætti að vera ágætis byrjun fyrir þig. og í GUÐANA BÆNUM ekki fara út í stjórnmálabaráttu, EVER!
krumma79 1 year ago
@krumma79 bwahahaha... þú ert algjört fífl.
PesiCool 1 year ago
@krumma79 "bwahahahaha" er ekki ástandið svo ótrúlega frábært í flestum kapítalistaríkjum heimsins þar sem fólk er hoppandi um fallegar gangstéttirnar og glerbyggingarnar með xbox360 í annarri hönd og nýjar diesel buxur í hinni?
Ohh wait, það er ótrúleg stéttaskipting og þetta kerfi virkar kannski fyrir suma, en alls ekki fyrir meirihlutann. Þú mátt lifa í þeirri blekkingu að telja að þú getir orðið jafn ríkur og þeir ríkustu einn daginn, það er nú það sem þeir vilja að þú haldir.
Þú þarft að.
PesiCool 1 year ago
@PesiCool No offense til þín Pesi en kommúnismi virkar ekki og mun aldrei, hann gengur á móti eðlisfari manneskjunnar. Það eru kannski ekki allir hoppandi úr gleði í kapítalistaríkjum en fólk getur allavegna átt drauma, gert eitthvað úr sér. Kapítalismi er alls ekki fullkominn og kommúnismi er það ekki heldur. En samanblanda av þessum tveimur kerfum virkar fínt. Þið verðið að skilja að það er ekki til nóg handa öllum og til þess að einn vinni, þá verður annar að tapa.
911Dagur 1 year ago
@krumma79 lesa aftur yfir sögu Sovétríkjanna vinur minn :)
PesiCool 1 year ago
Comment removed
PesiCool 1 year ago
@krumma79 Afsakið aftur, Evrópusambandið hendir árlega 90 MILJÓNUM tonna af mat í ruslið árlega.
PesiCool 1 year ago
@krumma79 Í samræmi við þeirra þörf. Það væri hægt að hafa vinnukvóta eða einhvers konar hvata sem rekur samfélagið áfram en kerfið sem við búum við í dag er einfaldlega siðferðislega rangt og mun alls ekki ganga til frambúðar.
PesiCool 1 year ago
... Fólk ætti að geta unnið talsvert minna, miðað við framleiðslugetu, og nýtt aukatímann í skapandi hugsun og sjálfboðavinnu.
ttcmp0 1 year ago
Sko. ESB ályktar, eftir mörgum rannsóknum, að hugmyndin um grunnframfærslu sé sniðug.
Auðvitað eru þau ekki að hvetja fólk til iðjuleysis. Enda myndi fólk veslast upp ef það hefði ekkert fyrir stafni nema innantóma skemmtun. Og ég vænti þessi ekki að slíku fólki yrði leyft að hanga á okkur hinum sem færum eitthvað fram til þjóðfélagsins.
Það sem þau eru að segja (eins og ég skil það) er að fólk þurfi ekki að taka þessari klassísku 9-5 vinnu svo alvarlega. ...
ttcmp0 1 year ago
Ja hérna..
Á hverju ætlið þið að lifa?
Það sem gert var ráð fyrir í kommanistaávarpinu endar í því að þeir duglegu vinna fyrir þá sem nenna ekki að vinna.
Eða er þetta kannski grín??
haukfrann 1 year ago
Þetta video hlýtur að vera grín...
SkariKul 1 year ago
...það er ekki ástæðulaust að Íslendingar hafa notið einna mesta lífsgæða landa heimsins, enda hefur þjóðarframleiðsla á mann verið með því hæsta per íbúa undanfarið (top 10% rank).
Það verður því aldrei hægt að framleiða minna og njóta meiri lífsgæða í almennum skilningi. Þeir sem vinna ekki þurfa allaf að fá lífgæðin greidd af þeim sem vinna eða skapa verðmæti. Að auka það umfram það sem nú er hefur bara neikvæð áhrif.
gudsgis 1 year ago
Það er gott og blessað að velta fyrir sér hvernig má betrumbæta samfélagið okkar - en hins vegar finnst mér þið vera á mjög hálum ís í þessari umræðu ykkar. Það eru of margar rangfærslur sem ganga ekki upp.
"...varðandi rétt komandi kynslóða er nauðsynlegt að stefna í átt að samfélagi sem framleiðir minna en hugsar og skemmtir sér meira"
Lífsgæði þjóða (og ég gef mér að þau séu amk af einhverju leyti efnisleg) hafa alltaf fylgt verðmætasköpun hennar. og...
gudsgis 1 year ago
@gudsgis Kannski minni framleiðsla en þá erum við líka að minnka mengun og hætta ða framleiða tilgangslaust afvegaleiðandi rusl, við sem heild gætum haft miklu meira vald en einstaklingar og þ.a.l. hrundið af stórum verkefnum til að útrýma hungursneyð, atvinnuleysi, heimilisleysi o.s.frv...
PesiCool 1 year ago
Að skilja hagfræði er að skilja það að peningar eru skuldir almennings og við erum öll rænd dags daglega af bönkum í hvert skipti sem við "græðum" peninga.
Það sem þau tvö eru að benda á er miklu eðlilegra samfélag en það sem við byggjum nú. Hvernig getur það verið að við vinnum jafn mikið (ef ekki meira) en fyrir 50 árum, þrátt fyrir allar byltingar í framleiðslutækni? Getum við virkilega ekki unnið minna?
ttcmp0 1 year ago
@ttcmp0 Þess vegna er ég kommúnisti :)
Með allar þessar efnislægu nautnir okkar erum við bæði að þurrausa náttúrauðlindirnar, rústa plánetunni og skapa fullt af vandamálum á öllum sviðum fyrir aðra.
Afnám gjaldmiðils, beint lýðræði, allt í almenningseigu (ég tel sjálfur að eign á landi og grunnlífsnauðsynjum sé siðferðislega rangt og skil ekki hver tileinkaði sér réttinn til að eigna sér land fyrst af öllum), skipulagður efnahagur, vinnukvóti, allt í sameign og þ.a.l. allt frítt
PesiCool 1 year ago
@ttcmp0 Og hvernig eru Peningar skuldir almennings? Útskýra?
911Dagur 1 year ago
@ttcmp0 Auðvitað gætum við verið að vinna minna. Þau hinsvegar koma ekkert inná ástæðurnar fyrir því afhverju og raunar stinga bara uppá því að minnka framleiðslu, ekki auka framleiðni.
Auðvitað gætum við unnið mun minna ef ríkisbáknið og seðlabankasvindlið væru bæði afnumin. Það kemur því sem þau eru að tala um hinsvegar ekkert við.
TheJaimeFoster 1 year ago
@Trogzinsky: Reyndar gæti ríkið prentað út endalaust af peningum, og peningar (eins og þeir eru í dag) eru að mestu verðlaus pappír. Ef þér finnst þeirra hugmyndir klikkaðar, þá legg ég til að þú lærir um peningakerfið :)
ttcmp0 1 year ago
@ttcmp0 Ef þeir prenta peninga verður peningurinn verðlausari, og það er ekki satt að þetta sé að mestu verðlaus pappír heldur liggur vinna og verðmæti á bak við hann og ef að peningurinn verður verðlausari fara verðin upp útaf verðbólgu og fólk mun hvorteðer ekki eiga fyrir neinu þá.
911Dagur 1 year ago
@911Dagur Hvers vegna heldur þú að líter af mjólk hafi kostað 10kr í "gamla daga" en kostar núna 150 kr? Ein, löng, samfelld verðbólga. Það er nefninlega sífellt verið að þynna út peningana okkar með hverju árinu. Bankarnir búa til peninga í hvert skipti sem lán er tekið.
ttcmp0 1 year ago
@ttcmp0 Ætla ekker að mótmæla því að peningarnir séu þynntir út en þessvegna eru líka laun hækkuð í samræmi. Launin voru líka miklu lægri í "gamla daga" og ef að 1L af mjólk kostaði enþá 10kr þá væru launin okkar líka tífalt lægri eða meira. Svo er auðvitað fólksfjölgun, fleira fólk = fleiri hlutir = meiri eftirspurn eftir hlutum = hærra verð á hlutum = hærri laun hjá þeim sem framleiða þá = hærri eftirspurn og svo gengur þetta í hringi.
911Dagur 1 year ago
@ttcmp0 Af hverju heldurðu að ég sé á móti gjaldmiðli í formi sínu í dag?
PesiCool 1 year ago
@PesiCool Nú, af því hann er form af ráni. (ehh.. athugasemd mín að neðan var til 911Dags sko, ekki þín :)
ttcmp0 1 year ago
@ttcmp0 Hvaða pólitíska hugmyndafræði aðhyllist þú?
PesiCool 1 year ago
Haha eruð þið að grínast...hvernig haldið þið að ríkið/sveitarfélögin fái tekjur til að greiða þeim sem eru atvinnulausir lágmarksframfærslu ?
Það er ekki eins og ríkið geti bara prentað endalaust af peningum það þurfa að vera einhver verðmæti (til að mynda framleiddar einingar af vörum sem nóg er til af skv.ykkur) á bakvið þá seðla annars er þetta bara verðlaus pappír !
Lesið hagfræði bók og skammist ykkar svo.
Togzinsky 1 year ago
Endilega gerið samfélagið réttlátara fyrir okkur hin og flytjið á norræna velferðarkerfið.
runolfur135 1 year ago
Vinstri grænir í hnotskurn.
MrBeGuud 1 year ago
En hagfræðingarnir sem hér skrifa athugasemdir ættu þó að geta tekið undir það sjónarmið, að það mætti stytta vinnuvikuna svolítið. Ekki satt?
gudmdharalds 1 year ago
@gudmdharalds Þvert á móti. Ef frídögum yrði fækkað, þá gæti Ísland mögulega borgað upp allar sínar skuldir eftir örfá ár. Ef ég man rétt, þá var þetta gert í frönsku byltingunni með ágætis árangi.
CharlieBrenja 1 year ago
@CharlieBrenja Það er líklega varhugavert, hafðu í huga að hér á landi er framleiðsla per vinnustund mun minni en á öllum norðurlöndunum og lág meðal evrópulanda. Aukning vinnustunda gæti haft í för með sér lítilfjörlega aukningu í afköstum - en lífsgæði yrðu skert.
gudmdharalds 1 year ago
@gudmdharalds Það er svo'sum rétt, enda er ég ekki beint á þeirri skoðun að fækka ætti frídögum. Hins vegar væri það engum til góðs að fjölga þeim.
CharlieBrenja 1 year ago
@CharlieBrenja Þvert á móti. Ef um er að kenna einhvers konar þreytu sem fólk nær aldrei úr sér, þá myndi hófleg aukning frídaga líklega auka framleiðni. Það eru nokkur merki þess að um slíka þreytu sé að ræða.
gudmdharalds 1 year ago
@gudmdharalds Það hefur sýnt sig og sannað að þeir sem fá t.d. að hvíla sig í einhvern tímann um miðdegið (síesta) eru miklu virkari og skila af sér meiri vinnu afganginn af vinnudeginum
PesiCool 1 year ago
@gudmdharalds
Spurðu einhvern atvinnurekenda hvort hann gæti borgað fólki það sama þótt það myndi stytta vinnukuna í 30 tíma.
tryggvi3000 1 year ago 2
Takk - ég hef ekki hlegið svona lengi. Á hvernig krakki eruð þið? - ég þarf að komast í þetta
gunnipanik 1 year ago 3
Wóóó Hvernig væri að deila því sem þið eruð að reykja með okkur hinum...hljómar eins og gott partý þarna í kollunum á ykkur.
tryggvi3000 1 year ago 4
Fólk eins og þið gerið það að verkum að ég skammast mín fyrir að vera mannvera.
Hugmyndir ykkar eru vægast sagt hættulegar mannkyninu!!
krumma79 1 year ago 3
Hahahahaha eruð þið að gera ykkur grein fyrir fáránleikanum sem veltur uppúr ykkur? Smá tips: Lærið hagfræði!
krumma79 1 year ago 3
Til að draga saman, hugmyndirnar ykkar eru ógeðslegar, stórhættulegar, fáránlegar og myndu leiða til fátæks, vesæls og óréttláts samfélags. Þið skiljið ekki mannlegt eðli, þið hafið ekki hugmynd um hvernig hagfræði virkar og þið eruð með fáránlega útþanið sense of entitlement.
TheJaimeFoster 1 year ago 6
Comment removed
ttcmp0 1 year ago
@TheJaimeFoster Hugmyndin um peninga er ógeðsleg, stórhættuleg, fáránleg og hefur þegar leitt til fátæks, vesæls og óréttláts samfélags, einmitt sökum mannlegs eðlis þeirra sem höfðu völdin þegar kerfinu var komið á.
Það sem þau eru að tala um eru fallegar hugsjónir. Heimur þar sem ekki er framleitt um of, allir eiga rétt til grunnframfærslu (sem ESB samþykkti víst nýlega - þekki það ekki nógu vel samt) og þar sem fólk hefur meira frelsi til nýsköpunar og sjálfboðavinnu. ...
ttcmp0 1 year ago
Að slíta framleiðandann frá framleiðslunni kallast sérhæfing(ekki ósérhæfing, kjánarnir ykkar) og er ástæðan fyrir því að við Íslendingar búum ekki lengur í moldarkofum.
Að stefna á 40-50% atvinnuleysi er svo aftur, ógeðslegt. Þið viljið s.s. að helmingur þjóðarinnar haldi hinum helmingnum uppi með því að vinna drepleiðinlega vinnu(ykkar orð) á meðan hinn helmingurinn verður í einhverju rosalega "skapandi"?
TheJaimeFoster 1 year ago 12
@TheJaimeFoster ... Auðvitað eru þau ekki að hvetja til iðjuleysis og leti. Það eru fjöldamargar leiðir til þess að komast hjá því að ala uppi lata þjóð í svona kerfi.
ttcmp0 1 year ago
Smári talar líka um hvað hann væri til í að vera atvinnulaus og hafa meiri frítíma. Gott að vita að þér finnst eðlilegt og sjálfsagt að vera sníkjudýr á restinni af samfélaginu, að þér finnist í lagi gefa ekkert en þiggja helling. Falleg og réttlát hugsun þar á ferð.
TheJaimeFoster 1 year ago 15
@TheJaimeFoster Láttu ekki svona, þau ætla að vera á fullu að gera eitthvað skapandi.................
Rusl2006 1 year ago
Þið minnist einnig á að með því að framleiða minna færi fólk að hugsa og skemmta sér meira. Þið skiljið nokkuð augljóslega ekki mannlegt eðli. Fólk er ekkert í því að framleiða miklu meira en það þarf á kostnað þess að skemmta sér. Það er enginn það fylltur sjálfshatri að hann neiti sér svoleiðis um skemmtun. Fólk framleiðir þangað til að það á nóg til þess að uppfylla þarfir sínar, bæði grunnþarfir og svo hluti eins og að skemmta sér.
TheJaimeFoster 1 year ago 6
Svo talið þið helling um "til hvers að vinna, það er nóg til" og hvernig fólk ætti frekar að eiga meiri frítíma og eitthvað. Hvernig er það réttlátt að sumir fái þennan aukafrítíma og þurfi ekki að vinna í drepleiðinlegri vinnu á meðan að aðrir þurfa að gera það? Það er eins og þið hugsið nákvæmlega ekkert um hvaða afleiðingar þessar hugmyndir ykkar hefðu í för með sér, en þær eru auðvitað fáránlegt og algjört óréttlæti.
TheJaimeFoster 1 year ago 7
Sú hugmynd að allir hafi rétt á því að hafa einhverjar lágmarkstekjur og geta séð fyrir sér án þess að þurfa að vinna er fáránleg. Hún er ekki bara óraunhæf heldur er hún ógeðsleg í eðli sínu. Það að einhver geri kröfu um að hafa "rétt" til grunnframfærslu þýðir ekkert annað en að hann geri kröfu um það að hafa "rétt" á vinnu og tíma annarra. Með öðrum orðum, með því að gera þessa kröfu um réttindi ertu í raun að gera kröfu um að einhver þjóni þér skilyrðislaust, amk tímabundið. Það er þrælkun.
TheJaimeFoster 1 year ago 5
Þetta er sniðugt. Vildi að allir myndu hugsa eins og þið. Þá myndi enginn vinna. Allir fengju eins mikinn frítíma eins og þeir vildu. Fólk gæti skapað eins og það vildi. Er ekki bara málið að hækka atvinnuleysisbætur í 350 þús?
andrielvar 1 year ago 2